Afurðir Í Búðardal þar sem mygluostar eru framleiddir.
Afurðir Í Búðardal þar sem mygluostar eru framleiddir. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Elín M. Stefánsdóttir, bóndi í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Mjólkursamsölunni og verður jafnframt fyrsta konan til þess að gegna hlutverki stjórnarformanns hjá fyrirtækinu.

Elín M. Stefánsdóttir, bóndi í Fellshlíð í Eyjafjarðarsveit, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Mjólkursamsölunni og verður jafnframt fyrsta konan til þess að gegna hlutverki stjórnarformanns hjá fyrirtækinu. Elín og eiginmaður hennar Ævar Hreinsson hafa verið bændur í Fellshlíð síðan 2002 og eiga fjögur börn. Elín hefur setið í stjórn Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar síðastliðin sex ár.

Breytingar urðu nýlega á fulltrúum Auðhumlu í stjórn Mjólkursamsölunnar í kjölfar aðalfundar Auðhumlu, sem er aðaleigandi MS. Ágúst Guðjónsson og Þórunn Andrésdóttir eru nýir aðalmenn í stjórn, en Þórunn var áður varamaður. Þau komu í stað Jóhannesar Torfasonar og Jóhönnu Hreinsdóttur, sem tók sæti í varastjórn. Þá var Björgvin R. Gunnarsson kosinn varamaður.

Margar áskoranir

Egill Sigurðsson, sem verið hefur stjórnarformaður frá árinu 2008, mun sitja áfram í stjórn fyrirtækisins, auk þess að sitja í stjórn nýs dótturfélags MS um erlenda starfsemi. Egill er jafnframt formaður stjórnar Auðhumlu. Auk Elínar, Ágústs, Egils og Þórunnar, situr Þórólfur Gíslason í stjórn MS sem fulltrúi Kaupfélags Skagfirðinga og er hann varaformaður. Varamenn í stjórn Mjólkursamsölunnar eftir breytinguna eru Ásvaldur Þormóðsson, Björgvin R. Gunnarsson, Jóhanna Hreinsdóttir, Laufey Bjarnadóttir og Sigurjón Rúnar Rafnsson.

„Ég vil sjá Mjólkursamsöluna dafna sem best í framtíðinni. Það eru fram undan margar áskoranir fyrir mjólkuriðnaðinn í kringum endurskoðun á búvörusamningum, tollasamninginn við ESB, aukinn innflutning og fleiri þætti, sem geta haft veruleg áhrif á fyrirtækið sem er í eigu okkar kúabænda,“ segir Elín í tilkynningu frá MS.

Samstarf í 17 löndum

Egill Sigurðsson fráfarandi stjórnarformaður segir að mjólkuriðnaðurinn og Mjólkursamsalan sjálf hafi breyst mikið á undanförnum árum.

„Ég er ánægður með þann árangur sem náðst hefur í hagræðingu þar sem framleiðslueiningum og starfsfólki fækkaði á sama tíma og mjólkurframleiðsla jókst um tugi milljóna lítra árlega og var þeim ávinningi skilað til bænda og neytenda. Þá breyttist fyrirtækið úr því að framleiða nánast eingöngu fyrir innanlandsmarkað yfir í að eiga samstarf við aðila í 17 löndum um bæði beinan vöruflutning en einnig þekkingar- eða viðskiptaútflutning sem verður spennandi að fylgja eftir áfram. Það er mikill metnaður til þess að efla þessi erlendu viðskipti enn frekar,“ er haft eftir Agli.

Mjólkursamsalan er eitt stærsta matvælafyrirtæki landsins en ríflega fjögur hundruð ársverk eru unnin hjá fyrirtækinu af fólki af 22 þjóðernum. Starfstöðvar fyrirtækisins eru fimm hringinn um landið: Egilsstöðum, Búðardal, Akureyri, Selfossi og Reykjavík. sbs@mbl.is