Reese Witherspoon nýtur jafnan lýðhylli.
Reese Witherspoon nýtur jafnan lýðhylli. — AFP
Kvikmyndir Miðillinn Deadline fullyrðir að til standi að hlaða í þriðju Legally Blond-myndina innan tíðar en tvær fyrri myndirnar slógu rækilega í gegn fyrir hálfum öðrum áratug, 2001 og 2003.
Kvikmyndir Miðillinn Deadline fullyrðir að til standi að hlaða í þriðju Legally Blond-myndina innan tíðar en tvær fyrri myndirnar slógu rækilega í gegn fyrir hálfum öðrum áratug, 2001 og 2003. Eins og áður kemur Reese Witherspoon til með að leika aðalhlutverkið, lögfræðinginn knáa Elle Woods. Ekki liggur fyrir hver söguþráður nýju myndarinnar verður en Deadline gerir því skóna að „kvennakrafturinn“ sem fylgt hefur metoo-byltingunni hljóti að verða þar í forgrunni. Þess má geta að söngleikur, byggður á myndunum, hefur notið vinsælda undanfarinn áratug og dregið að nýja kynslóð.