Kristjana Stefánsdóttir.
Kristjana Stefánsdóttir.
Kristjana Stefánsdóttir söngkona kemur ásamt kvartetti sínum fram á öðrum tónleikum sumardjasstónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag, laugardag, kl. 15.

Kristjana Stefánsdóttir söngkona kemur ásamt kvartetti sínum fram á öðrum tónleikum sumardjasstónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag, laugardag, kl. 15.

Kvartettinn skipa auk Kristjönu þeir Guðmundur Pétursson á gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á kontrabassa og Kristofer Rodriguez Svönuson á trommur. Á efnisskránni verða þekkir djassstandardar og önnur uppáhaldslög söngkonunnar í djassútsetningum. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Aðgangur er ókeypis.