Svartur trukkur hefur fundið sér stæði í Mathöll Granda og ber nafnið The Gastro Truck. Þar ræður ríkjum Gylfi Bergmann Heimisson.

Svartur trukkur hefur fundið sér stæði í Mathöll Granda og ber nafnið The Gastro Truck. Þar ræður ríkjum Gylfi Bergmann Heimisson.

„Við bjóðum upp á „spicy crispy“ kjúklingaborgara sem við höfum einnig boðið upp á í matarbílnum okkar,“ segir Gylfi. „Svo erum við einnig með grænmetisútgáfu af honum. Fleiri réttir eru væntanlegir en þetta er allt í anda „street food“,“ segir hann. „Fyrrverandi kona mín, Linda Björg Björnsdóttir hannaði alla réttina en hún er ástríðukokkur frá blautu barnsbeini. Uppskriftin er leyndarmál,“ segir Gylfi og hlær.