Turtildúfurnar Jamie og Shaaba.
Turtildúfurnar Jamie og Shaaba. — Channel 4
Sjónvarp Þeim þykir ekki trúlegt að sonur þeirra sé í raun og veru samkynhneigður. Hann sýndi þess engin merki í bernsku og í dag er hann stór og sterkur, vinnur í byggingariðnaði, heilsar með þéttu handabandi og gengur „eins og karlmaður“.
Sjónvarp Þeim þykir ekki trúlegt að sonur þeirra sé í raun og veru samkynhneigður. Hann sýndi þess engin merki í bernsku og í dag er hann stór og sterkur, vinnur í byggingariðnaði, heilsar með þéttu handabandi og gengur „eins og karlmaður“. Hann hlýtur að vera „streit“. Í nýjum heimildarþáttum, Bride and Prejudice, sem sjónvarpsstöðin Channel 4 hefur látið gera, reynir Rob að sannfæra foreldra sína í eitt skipti fyrir öll um að hann sé samkynhneigður áður en hann gengur að eiga ástina í lífi sínu, Simon. Shaaba frá Maritíus á líka í basli með foreldra sína, en móðir hennar er í öngum sínum yfir því að hún vilji ganga að eiga Jamie. „Ég meina, hann er hvítur! Það er ekki það sem mig dreymdi um fyrir hönd dætra minna,“ segir móðirin.