Tannþráðurinn hjálpar til við að fá fallegt bros og losna við andremmu.
Tannþráðurinn hjálpar til við að fá fallegt bros og losna við andremmu. — Reuters
Allir vita að það er mikilvægt að bursta tennurnar til að koma í veg fyrir tannskemmdir og flestir (vonandi allir!) bursta tennurnar kvölds og morgna, í það minnsta. Það sem hins vegar vill oft gleymast er mikilvægi þess að nota tannþráð.

Allir vita að það er mikilvægt að bursta tennurnar til að koma í veg fyrir tannskemmdir og flestir (vonandi allir!) bursta tennurnar kvölds og morgna, í það minnsta. Það sem hins vegar vill oft gleymast er mikilvægi þess að nota tannþráð. Hvenær dagsins hann er notaður skiptir ekki máli; mikilvægast er að hann komi við sögu a.m.k. einu sinni á dag. Og ekki grípa í það sem hendi er næst þótt eitthvað festist á milli tannanna, t.d. fingurnögl, því það getur sært tannholdið.

Með því að nota tannþráð fjarlægjum við meira en fimm hundruð bakteríutegundir sem lifa á matarleifum og óhreinindum sem vilja festast á milli tannanna. Þessar bakteríur geta gert okkur lífið leitt með tannskemmdum, bólgum og sýkingum í tannholdi. Svo ekki sé minnst á andremmu sem er ekki bara hvimleið fyrir okkur sjálf, heldur líka fólkið í kringum okkur.