Helgi Hallvarðsson fæddist í Reykjavík 12.6. 1931. Foreldrar Helga voru Guðfinna Lýðsdóttir húsfreyja og Hallvarður Hans Rósinkarsson vélstjóri. Bræður Helga: Agnar vélfræðingur, Birgir, fyrrv. fulltrúi; Hilmar, fyrrv.

Helgi Hallvarðsson fæddist í Reykjavík 12.6. 1931. Foreldrar Helga voru Guðfinna Lýðsdóttir húsfreyja og Hallvarður Hans Rósinkarsson vélstjóri.

Bræður Helga: Agnar vélfræðingur, Birgir, fyrrv. fulltrúi; Hilmar, fyrrv. yfirverkstjóri; Gylfi tækjamaður í Reykjavík, og Guðmundur, fyrrv. alþingismaður.

Eftirlifandi eiginkona Helga er Þuríður Erla Erlingsdóttir. Börn þeirra: Guðfinna viðskiptafræðingur, Sigríður bókari og Helgi stjórnmálafræðingur.

Helgi ólst upp á Seltjarnarnesi, í Skerjafirði og á Hrísateig í Reykjavík. Hann lauk farmannaprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1954 og varðskipaprófi frá varðskipadeild skólans 1962, lauk hann flugumferðarstjóraprófi frá Flugmálastjórn 1956 og fjölda námskeiða, m.a. hjá bandarísku strandgæslunni og danska sjóhernum.

Helgi starfaði lengst hjá Landhelgisgæslunni. Hann byrjaði þar sumarið 1946 en var að loknu námi stýrimaður á öllum varðskipum og flugvélum hennar árin 1954-63 og skipherra á öllum varðskipum, flugvélum og í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar frá 1964-90.

Helgi var oft í fremstu víglínu þegar landhelgin var færð út í 12, 50 og síðar 200 mílur og Íslendingar háðu sín þorskastríð. Hann tók virkan þátt í stjórnmálastarfi, lengst af með Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík og Kópavogi, en síðar með Frjálslynda flokknum. Hann skrifaði fjölda greina í Morgunblaðið og Sjómannablaðið Víking og flutti einnig útvarpserindi um mál Landhelgisgæslunnar og öryggismál sjómanna. Endurminningar Helga, Í kröppum sjó, sem Atli Magnússon skráði, komu út 1992.

Helgi hlaut St. Olavsorðuna, fyrstu gráðu, árið 1974, riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1976 og heiðursmerki sjómannadagsins árið 2003.

Helgi lést 15.3. 2008.