Stjörnufans Brad Pitt leikur í myndinni með fleiri þekktum.
Stjörnufans Brad Pitt leikur í myndinni með fleiri þekktum.
Leikstjórinn Quentin Tarantino hefur ráðið hóp af kvikmyndastjörnum til að leika í næstu kvikmynd sinni, en efniviðurinn er sóttur í heim leikaranna og mun hún heita Once Upon a Time in Hollywood .

Leikstjórinn Quentin Tarantino hefur ráðið hóp af kvikmyndastjörnum til að leika í næstu kvikmynd sinni, en efniviðurinn er sóttur í heim leikaranna og mun hún heita Once Upon a Time in Hollywood . Samkvæmt tímaritinu Variety mun Al Pacino í fyrsta skipti leika undir stjórn Tarantino – hann fer með hlutverk umboðsmanns leikarans sem Leonardo DiCaprio leikur. Brad Pitt verður einnig í stóru hlutverki.

Kvikmyndin gerist árið 1969 og fjallar um bræður sem Di Caprio og Pitt leika. Inn í söguna blandast fjöldamorð Charles Manson og fylgjenda hans, þar á meðal á leikkonunni Sharon Tate sem Margot Robbie leikur í kvikmyndinni. Meðal annarra leikara eru Burt Reynolds og Dakota Fanning.