[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Samuel L. Jackson þarf að fara að passa sig þegar hann setur inn færslur á Twitter. Samuel er þekktur fyrir að vera frekar groddalegur í orðavali og í kvikmyndum eins og Pulp Fiction og Snakes on a Plane er hann ekkert að skafa utan af því.
Samuel L. Jackson þarf að fara að passa sig þegar hann setur inn færslur á Twitter. Samuel er þekktur fyrir að vera frekar groddalegur í orðavali og í kvikmyndum eins og Pulp Fiction og Snakes on a Plane er hann ekkert að skafa utan af því. En Samuel er eins þegar hann setur inn færslur á Twitter og þeir hjá Twitter eru ekki ánægðir með orðbragð leikarans. Sendu þeir honum viðvörun um að það sem hann setti á Twitter væri óviðeigandi og hann þyrfti að passa sig. Samuel L. Jackson sagði frá þessu á Instagram á dögunum og fannst þetta allt saman voðalega skrítið. Við sjáum svo til hvort hann lagar orðbragðið í kjölfarið eða verður settur í bann á Twitter.