Öllum Víðisverslunum hefur verið lokað og engin svör fást frá stjórnendum fyrirtækisins um ástæður þess og hvort fyrirtækið stefni í gjaldþrot eða sé þegar komið í þrot, eins og sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um síðustu daga.

Öllum Víðisverslunum hefur verið lokað og engin svör fást frá stjórnendum fyrirtækisins um ástæður þess og hvort fyrirtækið stefni í gjaldþrot eða sé þegar komið í þrot, eins og sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um síðustu daga. Stór birgir verslanakeðjunnar segir eitthvað hafa borið á vanskilum hjá versluninni undanfarna mánuði og hefur áhyggjur af því að á annan tug milljóna bundið í ferskri matvöru liggi undir skemmdum á meðan búðin sé lokuð.

Víðisverslanirnar fimm hafa verið lokaðar síðan á fimmtudag og segir í gluggum verslunarinnar að það sé vegna breytinga. Eigendur verslunarinnar hafa ekki svarað ítrekuðum símtölum mbl.is og hafa einhverjir starfsmenn verslunarinnar sagt frá því á samfélagsmiðlum að þeir hafi mætt til vinnu og komið að læstum dyrum, og enginn hafi látið þá vita af lokuninni.

Í samtali við mbl.is segir Bryndís Guðnadóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs VR, að einhverjir starfsmanna Víðis hafi leitað til stéttarfélagsins og leitað upplýsinga um hvað sé á seyði. VR hafi því sent fyrirspurn til Víðis en engin svör fengið um hvort lokunin sé varanleg eða tímabundin.

Ekkert bendir til annars en að starfsmenn hafi fengið greidd laun um síðustu mánaðamót, að sögn Bryndísar, og hún segir rétt starfsmanna alveg skýran upp á að þeir eigi að fá uppsagnarfrest greiddan hjá fyrirtækinu, sé um gjaldþrot að ræða.