„Mig langaði bara að prófa að sitja í svona klakabaði,“ segir Lea Marie, sem hóf að stunda köld böð í febrúar á þessu ári.

„Mig langaði bara að prófa að sitja í svona klakabaði,“ segir Lea Marie, sem hóf að stunda köld böð í febrúar á þessu ári. Hún var á spítala um áramótin vegna vefjagigtar sem hún hefur þjáðst af í fjögur ár en fannst engin lyf ná að slá á verkina og ákvað því að prófa köld böð. „Það er búið að vera erfitt fyrir mig að labba og ég gat ekkert setið, þannig að ég ákvað að prófa þetta sem verkjastillingu og í rauninni hefur þetta virkað miklu betur fyrir mig en nokkurt annað lyf.“

Lea Marie Galgana, nýkrýndur Íslandsmeistari í ísbaði, var á línunni í Ísland vaknar í gærmorgun, en hún var í heilar 42 mínútur í ísbaði á Íslandsmótinu sem haldið var í Grindavík fyrir nokkru. Hlustaðu á viðtalið í heild sinni á www.k100.is