Ljósmyndari Konráð Ragnarsson.
Ljósmyndari Konráð Ragnarsson.
Konráð Ragnarsson hefur opnað ljósmyndasýninguna „Oft er brauð undir áleggi“ í gluggum flestra verslana og stofnana á Strandgötunni í Hafnarfirði.

Konráð Ragnarsson hefur opnað ljósmyndasýninguna „Oft er brauð undir áleggi“ í gluggum flestra verslana og stofnana á Strandgötunni í Hafnarfirði. Um er að ræða myndir sem spanna allt frá byrjun ljósmyndaferils hans fyrir 15 árum til dagsins í dag. „Þetta er ákaflega blönduð sýning, engin sérstök temu, heldur er hver mynd sjálfstæð sem slík. Þarna er blanda af húmor, landslagsmyndir, mjög persónulegar myndir og smá dökkar myndir af tilverunni,“ segir Konráð, sem bendir á að líf hans hafi einkennst af sársauka.

„Ég hef upplifað sársauka síðan ég man eftir mér. Síðastliðin þrjú ár hef ég barist við mikil veikindi, missti fótinn, tennurnar, fékk vefjagigt og krabbamein. Ég held að sú reynsla komi nokkuð oft fram í myndum mínum og nota ég þennan miðil mikið til að tjá tilfinningar mínar og reynslu. Síðan má ekki gleyma þeirri hrottalegu reynslu sem ég varð fyrir sem barn að vera sendur til Breiðavíkur í tæp tvö ár,“ skrifar Konráð, sem býr í Svíþjóð þar sem hann starfar sem ljósmyndari, rafvirkjameistari og leikari.

„Leikaraferill minn hófst af alvöru þegar ég var ráðinn í þættina Heimsenda eftir Ragnar Bragason, en síðan hef ég tekið þátt í yfir sextíu verkefnum, þeirra á meðal Game of Thrones , Noah með Russell Crowe og The Fifth Estate með Benedict Cumberbatch,“ skrifar Konráð, sem lék einnig í Hvörfum hjá LabLoka sem fjallaði um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Sýningunni lýkur 18. júní.