Dansaðu vindur! Aron Einar tekur létt spor í rokinu á æfingu gærdagsins.
Dansaðu vindur! Aron Einar tekur létt spor í rokinu á æfingu gærdagsins. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hélt áfram undirbúningi sínum fyrir leikinn gegn Argentínu í rússneska bænum Kabardinka í gær.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hélt áfram undirbúningi sínum fyrir leikinn gegn Argentínu í rússneska bænum Kabardinka í gær. Óhætt er að segja að liðið hafi fengið byr í seglin í gær því það blés hressilega í sólinni við Svartahafsstrendur með þeim afleiðingum að loka þurfti flugvellinum í Gelendzhik og sömuleiðis vinnuaðstöðu íslenskra fjölmiðlamanna í Kabardinka.

Myndir og grein frá Rússlandi er að finna á bls. 6 og í íþróttablaðinu í dag er rætt við landsliðsmennina Jóhann Berg Guðmundsson og Samúel Kára Friðjónsson. 6 og íþróttir