Lækkun Gengi flestra félaga féll.
Lækkun Gengi flestra félaga féll.
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 1,25% í tæplega 2 milljarða króna viðskiptum á fyrsta viðskiptadegi vikunnar. Mest lækkaði gengi hlutabréfa í Högum, um 2,2% í rúmlega 420 milljóna króna viðskiptum.

Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um 1,25% í tæplega 2 milljarða króna viðskiptum á fyrsta viðskiptadegi vikunnar.

Mest lækkaði gengi hlutabréfa í Högum, um 2,2% í rúmlega 420 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkaði gengi hlutabréfa í Regin um 1,58% í tæplega 100 milljóna króna viðskiptum.

Eimskip var eina félagið í Kauphöllinni sem hækkaði í viðskiptum gærdagsins. Gengi bréfa í Eimskipi hækkaði um 0,26% í 68 milljóna króna viðskiptum.

Mest voru viðskipti með bréf Haga í gær, en einnig var umtalsverð velta með bréf Heimavalla, fyrir 401 milljón króna, og N1, 343 milljónir króna.