Gamli og nýi tíminn Með auknum umsvifum, meðal annars með fjölgun skemmtiferðaskipa, var talin þörf á öflugri dráttarbát. Myndin er tekin í Fiskihöfninni á Akureyri og sýnir bátakost Hafnasamlags Norðurlands.
Gamli og nýi tíminn Með auknum umsvifum, meðal annars með fjölgun skemmtiferðaskipa, var talin þörf á öflugri dráttarbát. Myndin er tekin í Fiskihöfninni á Akureyri og sýnir bátakost Hafnasamlags Norðurlands.
Hafnasamlag Norðurlands tók á sunnudag á móti nýjum og öflugum dráttarbáti, sem smíðaður var í skipasmíðastöðinni Armon í norðurhluta Spánar.

Hafnasamlag Norðurlands tók á sunnudag á móti nýjum og öflugum dráttarbáti, sem smíðaður var í skipasmíðastöðinni Armon í norðurhluta Spánar. Guðný Sverrisdóttir, fyrrverandi sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi og stjórnarmaður í Hafnasamlaginu, gaf skipinu nafnið Seifur við móttökuathöfnina. Báturinn er með 42 tonna togkraft og því fjórfalt öflugri en sá sem fyrir er. Kaupverðið er um 490 milljónir króna og er það á pari við kostnaðaráætlun, segir á heimasíðu Vegagerðarinnar.

Báturinn hefur verið inni á samgönguáætlun og er smíði hans styrkt um tæp 60% af hafnabótasjóði.

Hann er 22 metra langur og níu metra breiður. Báturinn er búinn azimuth-skrúfubúnaði og verður öflugasti dráttarbátur landsins. Hann er með tveimur Cummins-vélum 1193 kW og er m.a. búinn sprautu til að slökkva eld og 25 tonnmetra þilfarskrana.

Svara kalli nýrra tíma

„Með því að festa kaup á svo öflugum dráttarbát er svarað kalli breyttra tíma, skipin stækka og núverandi dráttarbátar hafa ekki verið nógur öflugir fyrir Hafnasamlagið. Með tilkomu nýja bátsins eykst öryggið til muna og þjónustugildið eykst gríðarlega. Einnig opnast möguleikar á að þjónusta aðrar hafnir á Norðurlandi eins og t.d. Húsavíkurhöfn en mikil þörf er á þjónustu dráttarbáts þar eftir að stóriðjan á Bakka opnaði,“ segir á heimasíðu Vegagerðinnar.

Innan vébanda Hafnasamlags Norðurlands eru hafnirnar á Akureyri, Hjalteyri, Svalbarðseyri, Grenivík, Hrísey og Grímsey. Pétur Ólafsson er hafnarstjóri. aij@mbl.is