[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sviðsljós Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.

Sviðsljós

Erna Ýr Öldudóttir

ernayr@mbl.is

„Ég velti því oft fyrir mér eftir slysið hvort börn sem sækja starfsemi á vegum íþrótta- eða sveitarfélaga gætu verið í hættu,“ segir Páll Árnason, en hann hafði samband við Morgunblaðið eftir langa viðureign við „kerfið“ í leit að upplýsingum og ábyrgð en rakst alls staðar á veggi.

Tengdadóttir Páls, þá 22 ára, hlaut varanleg örkuml í slysi á lóð Frístundaheimilisins Frostheima við Frostaskjól 6 árið 2014, er hún starfaði þar sem frístundaráðgjafi.

„Hún tapaði skaðabótamáli gegn Reykjavíkurborg og KR í framhaldinu, en slysið var rakið til gáleysis hennar í dómsúrskurðinum. Hún hafði ætlað að sækja bolta sem barn missti yfir girðingu inn á afgirt svæði inni á lóð frístundaheimilisins og hífði sig upp eitt skref, en hætti við er hún varð vör við gadda efst á girðingunni. Giftingarhringur hennar kræktist í einn gaddinn þegar hún steig niður og baugfingurinn rifnaði af,“ segir Páll.

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í skaðabótamálinu gegn Reykjavíkurborg og Knattspyrnufélagi Reykjavíkur féll 29. nóvember 2016 en konan treysti sér ekki til að áfrýja dómnum innan áfrýjunarfrestsins eftir það sem á undan var gengið og vildi helst reyna að gleyma þessu, að sögn Páls.

Eftir slysið hafi síðan Vinnueftirlit ríkisins látið setja hlíf yfir gaddana en engin snör viðbrögð hafi orðið hjá Reykjavíkurborg, segir Páll sem vildi ekki gefast upp og leitaði áfram skýringa á hvers vegna eftirliti með umbúnaði lóðarinnar væri ekki sinnt með tilliti til starfseminnar sem þar fer fram, en allt að 260 börn eru skráð í frístund í Frostheimum, skv. upplýsingum þaðan.

Ekki skilgreind sem leiksvæði

Reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim skyldar Heilbrigðiseftirlitið til að sinna eftirliti á leiksvæðum borgarinnar. Markmið reglugerðarinnar, skv. 1. gr., er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan og viðurkenndan hátt, og í henni er að finna eftirfarandi skilgreiningu:

„Leiksvæði er svæði, hvort sem er innandyra eða utan, skipulagt fyrir leik barna svo sem í eða við leikskóla, skóla, gæsluvelli og opin leiksvæði. Einnig leiksvæði annarra aðila þar sem börn eiga greiðan aðgang að eða ætlað börnum svo sem í eða við fjöleignarhús, frístundahús, tjaldsvæði, verslunarhúsnæði og samkomustaði.“

Í bréfi Heilbrigðiseftirlitsins dags. 27. febrúar 2017, við fyrirspurn Páls um úttektir skv. reglugerðinni á lóð frístundaheimilisins Frostheima, segir að skoðanir hafi ekki farið fram því að „hvorki við húsið né á lóð þess er skilgreint leiksvæði (eða meðfylgjandi lóð)“.

Undir þetta svar tóku í framhaldinu deildarstjóri umhverfiseftirlits Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, skrifstofustjóri umhverfis- og skipulagssviðs og borgarlögmaður í skriflegum samskiptum sínum við Pál en í svari borgarlögmanns, dags. 15. mars 2018, segir að skýring Heilbrigðiseftirlitsins sé í samræmi við gildandi lagaumhverfi og dóminn í skaðabótamálinu, en ekki þótti sannað fyrir dómi að girðingin hefði verið andstæð reglum.

Á vef Reykjavíkurborgar stendur:

Frístundaheimili eru starfrækt við alla grunnskóla Reykjavíkurborgar. Þar er sex til níu ára börnum boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf eftir að skóladegi lýkur. Leitast er við að bjóða upp á spennandi viðfangsefni sem veita börnum útrás fyrir leik- og sköpunarþörf. Leiðarljós frístundaheimilanna er að hver einstaklingur fái að njóta sín og þroskast í umhverfi sem einkennist af hlýju, öryggi og virðingu.

Leiksvæðið við aðra götu

Morgunblaðið hafði ítrekað samband við Reykjavíkurborg með fyrirspurnir eftir að Páll leitaði til blaðsins með málið.

Borgarlögmaður svaraði að lokum og sagði varðandi eftirlit að í eftirlitsskýrslum Heilbrigðiseftirlitsins kæmi fram að lóð frístundaheimilisins væri ekki notuð sem leiksvæði, heldur skólalóð Grandaskóla. Lóðin bæri að mjög takmörkuðu leyti með sér að hún væri notuð fyrir leik barna. Á þeim grundvelli hefði Heilbrigðiseftirlitið ákveðið að það hefði ekki eftirlitsskyldu með svæðinu.

Ekki kom fram um hvers konar eftirlit Heilbrigðiseftirlitsins var að ræða í þeim eftirlitsskýrslum sem vísað var til í svari borgarlögmanns, en í starfsskyldum heilbrigðisfulltrúa er m.a. kveðið á um upplýsingaskyldu er varði almannaheill.

Við eftirgrennslan Morgunblaðsins kom í ljós að skólalóð Grandaskóla er við Keilugranda og börnin þurfa að ganga yfir umferðargötu til að komast þangað af frístundaheimilinu. Í gögnum skaðabótamálsins sést að umsagnaraðili um öryggi á slysstaðnum fyrir dóminum var Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, sem heyrir undir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, en Heilbrigðiseftirlitið gaf einnig út starfsleyfi frístundaheimilisins árið 2010. Þar sem Reykjavíkurborg var annar stefndu og deilt var m.a. um eftirlitsskyldu Heilbrigðiseftirlitsins fyrir dómi spurðist Morgunblaðið fyrir hjá Lögmannafélagi Íslands, sem upplýsti eftirfarandi:

„Almenna reglan í lögum um meðferð einkamála er sú að kveðja skuli til óvilhalla matsmenn.“

Umskipti í svörum

Í svari borgarlögmanns til Morgunblaðsins varðandi skilgreiningu á leiksvæði kemur fram að hugtakið „leiksvæði“ skv. reglugerðinni sé skilgreint rúmt. Heilbrigðiseftirlitið hafi því eftirlit með leiksvæðum á vegum Reykjavíkurborgar, þ.ám. leiksvæðum við frístundaheimili, og segir um lóð Frostheima: „Þar sem síðar kom í ljós að svæðið er notað fyrir leik barna sem eru á frístundaheimilinu telur Heilbrigðiseftirlitið nú ljóst að það sé leiksvæði skv. skilgreiningu [reglugerðarinnar] og falli undir eftirlitsskyldu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.“

Í vitnisburði eins forsvarsmanna frístundaheimilisins í skaðabótamálinu kom fram að leikur hefði verið bannaður, nema hlið inn í afgirt skot á lóðinni hefði verið opið, sem gefur til kynna að lóðin hafi þegar verið notuð sem leiksvæði árið 2014.

Heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar hefur eftirlit með að farið sé að ákvæðum reglugerðar varðandi leikvallatæki í notkun og öryggi leiksvæða og skal gera kröfu um innra eftirlit, skv. henni, í starfsleyfi. Innra eftirlit skuli framkvæmt af rekstraraðila, einstaklingi eða lögaðila sem ber ábyrgð á rekstrinum. Samkvæmt stjórnkerfisvef Reykjavíkurborgar sjá frístundamiðstöðvar um rekstur frístundaheimila, en þær heyra undir skóla- og frístundasvið hennar. Borgarráð, ásamt borgarstjóra, fer með framkvæmdastjórn Reykjavíkurborgar.