Ekki er gert ráð fyrir að Vaðlaheiðargöng verði opnuð fyrr en í janúar á næsta ári, samkvæmt nýjum drögum að verkáætlun. Fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir að göngin yrðu opnuð í sumar. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf.
Ekki er gert ráð fyrir að Vaðlaheiðargöng verði opnuð fyrr en í janúar á næsta ári, samkvæmt nýjum drögum að verkáætlun. Fyrri áætlanir höfðu gert ráð fyrir að göngin yrðu opnuð í sumar. Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf., segir á mbl.is að verktakinn Ósafl, sem er í eigu ÍAV, hafi komið fram með drög að uppfærðri áætlun þar sem fram komi verulegar seinkanir frá fyrri áætlunum. Ekki hafi enn fengist skýringar á því hvað veldur töfunum en Valgeir segir ekkert sérstakt hafa komið upp á við vinnuna.