Forritið
Þó svo að heimasíða Life Progress sé björt og fögur á að líta er ekki laust við að þjónustan sem hún býður upp á sé í dekkri kantinum.
Life Progress (lifeprogress.co) reynir að hvetja notendur til að láta draumana rætast og ná markmiðum sínum með því að minna þá reglulega á hvað þeir eiga mikið (eða lítið) eftir ólifað.
Markmiðið er, eins og aðstandendur verkefnisins orða það, að fá fólk til að lifa lífinu til hins ýtrasta og draga úr eftirsjá; að hvetja notendur til að hugsa stórt og haga lífinu þannig í dag að leiði til góðs á morgun.
Notandinn fyllir út eyðublað þar sem hann tiltekur m.a. aldur sinn og kyn og hvaða metnaðarfulla markmiði hann langar að ná í lífinu. Life Progress sendir síðan sms-skeyti og tölvupóst í hvert skipti sem notandinn færist 0,1% nær því að fara yfir móðuna miklu og líka fyrir hvern fjórðung af prósentubroti.
Endalokin færast nær – ertu búinn að skrifa skáldsöguna eða hlaupa heilt maraþon eins og þú ætlaðir þér? ai@mbl.is