Jónatan Arnórsson fæddist á Ísafirði 23. júní 1932. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 11. júní 2018.
Foreldrar hans voru Kristjana Gísladóttir, f. 4.7. 1900, d. 13.10. 1970, og Arnór Magnússon, f. 17.10. 1897, d. 12.2. 1986, skipstjóri á Ísafirði. Systkini Jónatans eru: Þorlákur, f. 1923, d. 2016; Jóhanna, f. 1925, d. 2017; Bjarni, f. 1926, d. 1927; Hilmar, f. 1928, d. 2015; Magnús, f. 1929; Júlíus, f. 1936; Stella, f. 1937, d. 2000.
Jónatan kvæntist árið 1955 Þóru Benediktsdóttur, f. 25.10. 1931, frá Hnífsdal. Foreldrar hennar voru Þórunn Pálína Borgey Guðjónsdóttir, f. 5.10. 1900, d. 10.2. 1992 og Benedikt Halldórsson, f. 19.5. 1904, d. 2.9. 1980. Börn Jónatans og Þóru eru: 1) Kristjana, f. 1953, gift Guðmundi Bjarnasyni, f. 1952, Börn þeirra: Óttar, f. 1974, Þóra Dögg, f. 1976, Bjarni Freyr, f. 1982 og Víðir Örn, f. 1990. 2) Valur Benedikt, f. 1955, kvæntur Kristínu B. Aðalsteinsdóttur, f. 1972. Börn þeirra: Hlynur, f. 1986, Benedikt, f. 1988, móðir þeirra er Sigríður Brynjúlfsdóttir f. 1956, Hrafnhildur Vala, f. 2003, Gísli Hrafn, f. 2006. 3) Arnór, f. 1957, kvæntur Kristjönu Ósk Hauksdóttur, f. 1960. Börn þeirra: Esther Ósk, f. 1979, Arna Lind, f. 1984, Þóra Marý, f. 1989. 4) Þóra Jóna, f. 1961, sambýlismaður hennar er Erlingur Jón Valgarðsson, f. 1961. Börn þeirra: Jónatan, f. 1990, Kolbrún, f. 1991, faðir þeirra er Vignir Vignisson, f. 1961, d. 2000. Börn Erlings: Sif, f. 1983, Almarr, f. 1985, Styrmir, f. 1988. 5) Rúnar Már Jónatansson, f. 1966, kvæntur Maríu Níelsdóttur, f. 1966. Börn Þeirra: Magna Rún, f. 1991, Katla, f. 1996, móðir þeirra er Marta Hlín Magnadóttir, f. 1970. Börn Maríu eru Erna Guðríður, f. 1985, Anna Margrét, f. 1997, faðir þeirra er Benedikt Einarsson, f. 1963.
Jónatan bjó á Ísafirði allan sinn starfsaldur, starfaði þar við sjómennsku, verkstjórn o.fl. og var útsölustjóri ÁTVR á Ísafirði lengi vel. Hann var virkur í félagsmálum, var stofnfélagi í Kiwanisklúbbnum Básum, var í Rótarýklúbbi Ísafjarðar og var m.a. í stjórn ÍBÍ.
Útför Jónatans fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 21. júní 2018, og hefst athöfnin kl. 13.
Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar ég hugsa um pabba. Pabba sem ég er nú að skrifa kveðjuorð um. Hann var góður faðir og ég leit upp til hans. Sterkustu og eftirminnilegustu minningarnar eru sennilega þegar ég vann með honum í Áfengisversluninni heima á Ísafirði í tvö sumur. Ríkið var það kallað og fyrst vann ég í gamla Ríkinu og síðar í nýja Ríkinu sem heitir Vínbúðin. Þar var pabbi útibússtjóri. Pabbi var frábær yfirmaður og þar urðum við góðir vinir. Oftar en ekki hjóluðum við saman úr firðinum og tókum sundsprett í Sundhöllinni áður en vinna hófst. Komum svo við í Gamla og sóttum okkur ylvolgt bakkelsi með morgunkaffinu. Þetta voru gæðastundir. Pabbi hugsaði nefnilega vel um heilsuna og þá sérstaklega að vera í kjörþyngd og hreyfa sig reglulega. Þegar við vorum að vinna saman fannst mér pínu óþægilegt að kalla neðan úr kjallara í vínbúðinni: „Pabbi!“ þannig að ég fór að kalla hann Jónatan í vinnunni við misgóð viðbrögð hans.
Pabbi var alltaf glaður maður og sérstaklega þegar hann hætti á sjónum. Ég held að sjómannslífið hafi ekki átt vel við pabba. Hann kveið oft fyrir að fara á sjóinn og maður skynjaði það svo vel að hann vildi miklu frekar vera í landi þar sem hann var nær fjölskyldunni sem hann unni heitt. Pabbi var mikill barnakarl og naut þess að vera með okkur systkinunum og barnabörnunum þegar þau komu eitt af öðru. Pabbi og mamma komu reglulega að heimsækja mig og fjölskyldu mína þau tíu ár sem ég bjó í Svíþjóð. Þar leið þeim sérstaklega vel. Þau fóru með okkur til Finnlands og Álandseyja og ferðuðust með okkur um skemmtigarða og strendur sem lágu nálægt heimili okkar. Pabbi var sundmaður mikill og þurfti alltaf að máta sig við öll vötn sem við vorum nálægt og mátti ekki vera minni en aðrir. Synti í ísköldum vötnum bakkanna á milli með mömmu áhyggjufulla og hrópandi á hann að snúa nú við. Keppnisskapið var aldrei langt undan hjá pabba. Pabbi er í raun og veru löngu horfinn yfir í græna landið þar sem hann glímdi við alzheimers-sjúkdóminn í mörg ár. En nú er komið að kveðjustund. Mikið sem ég á eftir að sakna elsku pabba sem alltaf reyndist mér vel og sem ég elskaði til hinstu stundar.
Þóra Jóna Jónatansdóttir.
Takk fyrir samfylgdina, elsku pabbi. Þú varst alltaf til staðar fyrir okkur. Barst hag fjölskyldunnar fyrir brjósti alla tíð. Nú ertu kominn í sumarlandið og laus úr hlekkjum alzheimers-sjúkdómsins. Guð geymi þig.
Kristjana (Kiddý),
Valur, Arnór, Þóra Jóna
og Rúnar.
Ef ég ætti að lýsa tengdaföður mínum í einu orði mundi ég nota orðið keppnismaður. Hann var fæddur hraustmenni og hafði unun af að keppa í svo að segja öllu. Mér er alltaf minnisstætt þegar ég fór á fyrsta ættarmótið hjá fjölskyldunni en þá skyldi sko keppt! Ættarmótið var haldið í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp og var sund ein þeirra greina sem átti að keppa í. Jónatan sem var duglegur að stunda Breiðholtslaugina með Þóru sinni var spenntur fyrir þessari grein og ákveðinn í að hans leggur mundi vinna. Laugin reyndist hins vegar vera 40° heit en það var nú ekki til að stoppa minn mann, það var bara keppt þvert í stað langsum!
Jónatan var frábær dansari en ég aftur á móti með þeim allra slakari – nema þegar ég dansaði við hann. Þá leið mér sem mér væru samkvæmisdansar í blóð bornir svo snilldarlega stjórnaði hann mér. Sú tilfinning hvarf hins vegar eins og dögg fyrir sólu þegar ég dansaði við annan en hann og ég flæktist fyrir öllum.
Jónatani og Þóru þótti svakalega gaman að horfa á handbolta og þá sérstaklega landsleiki. Það var jafnan fjör í Ásgarðinum þegar þau horfðu á leiki. Þau „áttu“ nefnilega hvort sinn strák í liðinu og auðvitað var alltaf keppni þeirra á milli hvor strákurinn mundi nú skora fleiri mörk.
Það var sárt að horfa á tengdaföður minn hverfa inn í heim alzheimers-sjúkdómsins. Það sem gerði hann að þeirri persónu sem hann var, þvarr smátt og smátt og við fengum ekkert að gert. Ég sat oft hjá honum og sagði sögur af öllu mögulegu eða spilaði fyrir hann tónlist. Best af öllu var samt að fá frá honum bros. Það gladdi mig alltaf jafn mikið. Ég man eftir síðasta skiptinu sem ég fékk brosið. Þá var ég einmitt að segja honum frá „hans manni“ í landsliðinu og rifja upp þegar við horfðum saman á leik sem Ísland vann og „hans maður“ var bestur. Þá brosti tengdapabbi minn.
Margs er að minnast og margt ber að þakka og í gegnum hugann undanfarna daga hefur flotið hafsjór af minningum. Minningum um hraustmenni sem bauð sjúkdómnum alzheimer birginn og kom ítrekað öllum á óvart. Í mínum huga verður Jónatan alltaf sigurvegari. Ég votta Þóru minni og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð um leið og ég þakka Jónatani samfylgdina og bið fyrir góðar kveðjur í Sumarlandið.
Kristín B. Aðalsteinsdóttir.
Eftir stendur minning um góðan og hlýjan mann, traustan og tryggan sem bar hag fjölskyldu sinnar fyrir brjósti og elskaði að vera í kringum barnabörnin sem og barnabarnabörnin sín á meðan hann gat.
Elsku afi okkar, nú ertu loksins kominn á betri stað, stað sem þú hefðir örugglega viljað komast á fyrir löngu. Nú mun þér líða miklu betur.
Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til Ísafjarðar og hitta ykkur ömmu, njóta þess að fara á skíði í veðurblíðunni fyrir vestan og vera í dekri hjá ykkur ömmu. Þú áttir alltaf lausa stund til þess að leika við okkur, bæði úti og inni og alltaf varst þú fyrstur til þess að stinga upp á að fara í allskonar keppnir. Amma datt sko heldur betur í lukkupottinn að hafa nælt sér í þig á sínum tíma, enda bráðmyndarlegur og aðaltöffarinn fyrir vestan. Ísafjörður var þinn staður og okkar bestu minningar um þig eru þaðan. Þar áttir þú þín bestu ár og talaðir alltaf svo vel um bæinn þinn og þér þótti svo vænt um hann. Þér leið svo vel í faðmi fjallanna og hafðir sjóinn alltaf nálægt þér.
Við erum 100% viss um að þú hefðir verið alsprækur karl að djöflast langt yfir tíræðisaldurinn ef ekki hefði verið fyrir sjúkdóminn. Þú varst alltaf svo einstaklega hraustur, hress og með mikið keppnisskap. Eitt sinn á Spáni fórst þú út að hlaupa með manni sem var 20 árum yngri en þú og slóst ekki slöku við. Það var ekki hægt að láta þann yngri halda að hann væri í betra formi en þú, svo lagðist þú fyrir gjörsamlega búinn á því en með bros á vör. Það eru ekki margir afar sem geta farið í arabastökk og labbað á höndum, en þú gerðir það reglulega og vorum við afar stolt að eiga svona hraustan afa.
Þú varst ætíð mikill sundgarpur, við minnumst þess þegar þú kepptir við okkur barnabörnin í kafsundi og amma stóð áhyggjufull á bakkanum, hrædd um að þú værir að ofgera þér í þetta sinn. En upp úr skaust svo kollur eftir 2 ferðir með brosandi bláar varir og þú alsæll með sigurinn. Eftir að þú fluttir til Reykjavíkur þá varst þú tíður gestur í Breiðholtslaug og ekki komstu þangað til þess að liggja í heita pottunum eins og aðrir jafnaldrar þínir, þú syntir þínar ferðir þar til sjúkdómurinn á endanum hamlaði þér það. Þegar þú fórst í innlögn á Landakoti átti starfsfólkið þar erfitt með að halda í við þig í göngutúrum sem það fór með þig í, þolið þitt var svo gott.
Elsku afi okkar, við vitum að þú munt núna vaka yfir ömmu sem og okkur hinum í stórfjölskyldunni þinni og hugsa vel um okkur eins og við höfum gert fyrir þig öll þessi ár. Við söknum þín sárt en erum jafnframt þakklát fyrir þær góðu minningar sem eftir lifa og munu þær ylja okkur um ókomin ár. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir okkur og kennt okkur. Við munum taka það með okkur og kenna næstu kynslóðum það. Þú varst okkar ofur-afi sem sýndi að aldur var engin fyrirstaða.
Blessuð sé minning þín, afi.
Óttar, Þóra Dögg, Bjarni Freyr og Víðir Örn.
Þegar ég hugsa til baka þá eru svo ótal margar minningar og mörg augnablik sem við eigum saman. Við tvö saman í garðinum að vökva grasið eða laga til í kartöflugarðinum. Við fórum saman út í bílskúr að berja harðfisk með hamri og borðuðum hann svo saman, við fórum út í garð með sykurkar frá ömmu og borðuðum rabarbara. Þegar þú settir upp jólaseríunar utan á húsið og baðst mig um að halda við stigann sem var heimagerður og valtur, ofsalega var ég hrædd um þig þarna uppi við þakskeggið og þú hlóst bara að mér þegar ég bað þig að fara varlega.
Öll börn sem umgengust þig muna eftir knúsunum þínum, afi minn, maður nánast missti andann, svo innileg voru þau. Elsku afi, þú varst minn mesti stuðningsmaður í sundinu, alltaf eftir mót þá beiðstu eftir mér til að vita hvernig mér gekk, ég sagði þér frá bætingum og sýndi þér verðlaunapeningana mína, alltaf hlustaðir þú á mig og þú vissir nákvæmlega hvað ég átti að gera til að gera betur næst enda mikill keppnismaður sjálfur. Það er margt í þínu fari sem ég hef ómeðvitað tileinkað mér eða erft frá þér, afi minn, stríðni og keppnisskap er ríkjandi í okkar fjölskyldu enda varst þú foringi mikill og vildir alltaf vinna. Þú kafaðir heilu og hálfu sundlaugarnar og hentir þér niður í armbeygjur án nokkurrar umhugsunar og labbaðir á höndum eins og sannur atvinnumaður. Í minningunni var aldrei neitt bannað í Brautarholtinu, ég mátti leika mér í úðaranum ef þú varst að vökva, mátti taka allt krikketdótið í garðinn og mátti leika með föt og skó inni í herbergi.
Ég fékk margoft að gista og fékk þá að horfa á Tomma og Jenna sem þú varst búinn að taka upp á spólu fyrir barnabörnin þín. Mörg jól og áramót man ég þar sem mikil gleði var ríkjandi, hlátur og kitl sem oftar en ekki enduðu á því að ég vafði mér um hálsinn á þér og hvíslaði: „Afi, má ég gista?“
Elsku afi minn, það er erfitt að kveðja þig þó svo að sál þín sé löngu farin.
Við sem eftir erum hugsum vel um ömmu, konuna þína sem þú elskaðir svo mikið.
Farðu varlega, afi minn, í handahlaupum og köfun í sumarlandinu.
Þín afastelpa,
Arna Lind.
Hann var alltaf í kringum sjóinn og fékk spýtur til að smíða bát. Merkilegt að enginn gerði athugasemdir við leik okkar barnanna. Það var róið á Pollinum á þessum drápsfleytum og allir glaðir. Þegar við urðum eldri, þá máttum við fara niður á höfn með því skilyrði að við færum varlega. Ég man daginn eins og gærdaginn. Við vorum mörg að veiða, það var fallegt veður, sól og logn og eins hlýtt og það getur orðið í maí vestur á fjörðum. Stór spýta þvældist fyrir öllum, hún hafði verið sett hingað og síðan þangað og var allsstaðar fyrir. Sá minnsti í hópnum tók af skarið, tók í annan endann á spýtunni og dró hana í átt að höfninni. Spýtan var þung það þurfti að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni. Hún var með stórum flísum sem festust í höndum lítils drengs og á öðrum endanum var nagli, stór nagli. Það tókst loksins að koma henni yfir hafnarkantinn, en hún var þung, ó guð, hvað hún var þung. Þegar spýtan svo steyptist í dýpið þá vildi ekki betur til en svo að naglinn varð eftir eftir í peysu drengsins og dró hann með sér. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins þennan dag var fallið milli fimm og sex metrar. Lífið er skrýtið, en um vorið hafði drengnum verið kennt í skólanum að taka fyrstu sundtökin, troða marvaðann og vera á floti og það var fyrsta hugsun hans. Hann komst upp, saup hveljur, kallaði og kallaði en enginn heyrði, sökk þá aftur, sturlaður af hræðslu. Götusópari sem var við vinnu á höfninni sá drenginn en hélt áfram vinnu sinni. Þrekið þvarr, hann sá bát útundan sér þar sem sterklegur maður fór úr klofstígvélum og lopapeysu og henti sér í sjóinn án þess að hugsa. Það var maður með drekablóð. Það er ótrúlegt logn, ótrúlega hlýtt, allt svart og skrýtnar litlar loftbólur hingað og þangað. Það er þögn, endalaus þögn. Síðan er tekið sterkum höndum um lífvana skrokkinn og drengurinn er dreginn upp á yfirborðið. Það er sárt að fá loft í lungun og tilfinningar spretta fram, hræðsla, grátur, gleði og fögnuður yfir lífgjafanum sem hikaði ekki við að henda sér í sjóinn á eftir litlum dreng.
Maðurinn syndir með hann að næsta bát, þar sem aðrir sjómenn aðstoða hann og púkann að komast á þurrt. Skjálfandi af kulda og hræðslu horfir hann á manninn sem hefur frelsað hann, stóran og sterkan, það drýpur af höfði hans og lekur af honum öllum. Það geislar af honum. Já, það er satt, hann er með drekablóð.
Ódauðlegur og getur allt. Hann er sjómaður. Hann tekur drenginn, brosir og faðmar hann að sér, segir honum að vera ekki hræddur, þetta sé allt í lagi. Lögreglan kemur, á ótrúlega flottum nýjum bíl, þeir mega ekki setjast. Drengurinn stendur og skelfur, bjargvætturinn situr á hækjum sér, þeir eru báðir votir inn að beini. Eina hugsunin er, hvað hann á að segja mömmu þegar heim kemur. En lögreglumennirnir sjá um það. Hún faðmar hann að sér, þakkar manninum sem dró hann upp úr höfninni kærlega fyrir.
Drengurinn fær kakó og er háttaður ofan í rúm.
Þetta atvik hefur aldrei verið rætt og þykir eðlilegur hlutur í litlu sjávarþorpi.
Elsku Jónatan, takk fyrir lífgjöfina. Ef ekki væri fyrir þig, þá væri þessi litli drengur ekki eiginmaður, ekki faðir og ekki afi. Hann væri ekki hér.
Guð mun launa þér fyrir líf þessa litla drengs. Hafðu þakkir fyrir allt og allt.
Ég votta aðstandendum lífgjafa míns innilega samúð.
Bjarni Jónsson.