Einar Falur Ingólfsson
Einar Falur Ingólfsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Á morgun, fimmtudagskvöldið 2. ágúst kl. 20, verða listamenn með leiðsögn á sýningunni Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu.

Á morgun, fimmtudagskvöldið 2. ágúst kl. 20, verða listamenn með leiðsögn á sýningunni Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Þar sýnir

Hekla Dögg Jónsdóttir sýnir stóran skúlptúr sem hún segir frá en hún hefur í verkum sínum skoðað eðli upplifunar, einkum hrifnæmis. Þar leikur hún sér með endurgerð fyrirbæra sem hafa óumdeilanleg áhrif á okkur, eins og náttúrulegur foss.

Einar Falur Ingólfsson segir frá ljósmyndasýningu sinni, en hann hefur um árabil ferðast um hálendið í leit að fólki sem sækir þangað á eigin forsendum. Hann hittir fyrir einstaklinga sem hver og einn hefur sínar væntingar og skynjar umhverfið á persónulegan hátt.