Hamagangur Tom Cruise hangandi í þyrlu í Mission: Impossible – Fallout.
Hamagangur Tom Cruise hangandi í þyrlu í Mission: Impossible – Fallout.
Mission: Impossible – Fallout Sjötta myndin í syrpunni um Ethan Hunt og félaga í hinni leynilegu sérsveit Bandaríkjanna sem kölluð er til þegar hætta steðjar að heiminum og leysa þarf verkefni sem virðast með öllu óleysanleg.
Mission: Impossible – Fallout

Sjötta myndin í syrpunni um Ethan Hunt og félaga í hinni leynilegu sérsveit Bandaríkjanna sem kölluð er til þegar hætta steðjar að heiminum og leysa þarf verkefni sem virðast með öllu óleysanleg. Hunt kemst í hann krappan enn eina ferðina eftir að verkefni sem hann átti að leysa fer úrskeiðis og hann lendir á milli steins og sleggju, þarf að stöðva hryðjuverkamenn sem hyggjast sprengja þrjár kjarnorkusprengjur og öðlast um leið traust samstarfsmanna sinna á ný. Tom Cruise fer sem fyrr með hlutverk Hunt og leikur að vanda sjálfur í áhættuatriðum sínum, en hann slasaðist við tökur á myndinni þegar hann stökk á milli bygginga. Aðrir helstu leikarar eru Henry Cavill, Ving Rhames, Simon Pegg, Rebecca Ferguson, Alec Baldwin, Angela Bassett og Vanessa Kirby.

Metacritic: 86/100

Rotten Tomatoes: 97%