Mikið hefur verið að gera í uppsjávarvinnslu HB Granda á Vopnafirði eftir að makrílvertíð hófst fyrir alvöru og þar er nú unnið allan sólarhringinn.

Mikið hefur verið að gera í uppsjávarvinnslu HB Granda á Vopnafirði eftir að makrílvertíð hófst fyrir alvöru og þar er nú unnið allan sólarhringinn. Sá háttur er hafður á í vinnslunni á Vopnafirði að starfsmenn vinna 12 daga í röð en eiga síðan frí í fjóra daga.

,,Það er núna verið að vinna afla Venusar NS sem kom hingað með um 700 tonn af makríl. Víkingur AK var að koma til hafnar með um 450 tonn en veðrið við Suð-Austurland hefur ekki verið hagstætt síðustu daga,“ var haft eftir Magnúsi Róbertssyni, vinnslustjóra HB Granda á Vopnafirði, á heimasíðu fyrirtækisins í gær. Makríllinn hefur verið stór og góður og meðalvigtin vel yfir 400 grömmum. Hann hefur ýmist verið unninn fyrir markaði í Evrópu og Asíu.