— Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Þær störðu dreymandi á hafið mæðgurnar sem ljósmyndari Morgunblaðsins gekk fram á við Gróttuvita á Seltjarnarnesi. Skammt frá landi mátti sjá stórt skemmtiferðaskip sigla löturhægt út Faxaflóa.
Þær störðu dreymandi á hafið mæðgurnar sem ljósmyndari Morgunblaðsins gekk fram á við Gróttuvita á Seltjarnarnesi. Skammt frá landi mátti sjá stórt skemmtiferðaskip sigla löturhægt út Faxaflóa. Hafði skipið skömmu áður legið við bryggju í Reykjavík en heldur nú til móts við ný ævintýri.