Hljómsveitin Greifarnir stendur nú níunda árið í röð fyrir útihátíð á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi um verslunarmannahelgina. Heldur hljómsveitin dansleiki á laugardags- og sunnudagskvöld.
Hljómsveitin Greifarnir stendur nú níunda árið í röð fyrir útihátíð á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi um verslunarmannahelgina. Heldur hljómsveitin dansleiki á laugardags- og sunnudagskvöld. Á sunnudagskvöld verður síðan brekkusöngur í brekkunni fyrir neðan SPOT. DJ Einar heldur uppi fjörinu þegar Greifarnir taka hlé.
Sérstakur gestur hljómsveitarinnar í ár verður Felix Bergsson en hann var fyrsti söngvari hljómsveitarinnar þegar hún sló í gegn seint á síðustu öld.