Bessi spjallaði við Rikku og Rúnar.
Bessi spjallaði við Rikku og Rúnar.
Dagskrá hátíðarinnar Flúðir um versló er afar fjölbreytt í ár og margt í gangi alla helgina.
Dagskrá hátíðarinnar Flúðir um versló er afar fjölbreytt í ár og margt í gangi alla helgina. „Það er allt klárt, bara léttur lokafrágangur í gangi og allir tilbúnir í slaginn“ sagði Bessi Theodórsson, framkvæmdastjóri Sonus viðburða, þegar Ísland vaknar tók púlsinn á honum. Meðal þeirra sem koma fram eru Sóli Hólm, KK-band, Páll Óskar, 200.000 Naglbítar, Magni Ásgeirsson og Stefán Hilmarsson. Á dagskránni má meðal annars finna barna- og fjölskylduskemmtun í Lækjargarðinum, traktoratorfæru og furðubátakeppni. Dagskrána í heild og viðtalið við Bessa finnurðu á k100.is.