Hröð vinna Fyrir Yfirvinnu gerðum við þrjú lög á kvöldi og unnum hana alla mun hraðar,“ segir Brynjar.
Hröð vinna Fyrir Yfirvinnu gerðum við þrjú lög á kvöldi og unnum hana alla mun hraðar,“ segir Brynjar. — Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Þrátt fyrir að hafa einungis byrjað að rappa fyrir einu og hálfu ári sendi rapparinn Brynjar Logi Árnason, sem gengur undir listamannsnafninu Yung Nigo Drippin', frá sér aðra plötu sína nýverið.

Ragnhildur Þrastardóttir

ragnhildur@mbl.is

Þrátt fyrir að hafa einungis byrjað að rappa fyrir einu og hálfu ári sendi rapparinn Brynjar Logi Árnason, sem gengur undir listamannsnafninu Yung Nigo Drippin', frá sér aðra plötu sína nýverið. Það er platan Yfirvinna en hann sendi frá sér plötuna Plús hús í fyrra.

Plús hús var eiginlega bara tekin í herberginu mínu á sínum tíma og þá vorum við ekkert að hugsa um að gefa efnið út, við vorum bara eitthvað að leika okkur. Fyrir Yfirvinnu gerðum við þrjú lög á kvöldi og unnum hana alla mun hraðar,“ segir Brynjar, en þessi hraða og mikla vinna sem fór í nýju plötuna segir Brynjar að hafi orðið til þess að hún hlaut titilinn Yfirvinna . „Við vorum náttúrulega að gera þetta allt frekar hratt og unnum frekar mikið í plötunni á tímabili.“

Þéttur en rólegur taktur

Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að íslenska rapp- og hipphoppsenan fer sívaxandi og hún virðist í raun aldrei ætla að hætta að stækka. Mýmargir nýir rapparar hafa skotið upp kollinum undanfarið og Brynjar er einn af þeim.

Einkennandi stíll margra rapparanna sem hafa komið inn í senuna nýverið er hægari taktur en áður hefur verið áberandi í íslensku rappi og í raun eitthvað sem hljómar frekar eins og tal en rapp. Þessi stíll er ráðandi í lögum Brynjars, takturinn er þéttur en rólegur og jafnvel svolítið drungalegur eða undarlegur. Klassísk minni í rappi fá að heyrast í textum Brynjars, hann rappar um peninga, merkjavörur og það að vera ískaldur. Brynjar segist ekki spá mikið í hvernig lögin hans eigi að vera áður en hann byrji að semja. „Strákarnir gera einhvern takt og síðan kem ég inn í. Stundum er ég með einhverjar hugmyndir að lögum áður en ég hitti strákana og svo byrja þeir bara að gera einhvern takt og ég rappa bara yfir það. Svo gerum við eitthvað úr því í sameiningu,“ segir Brynjar, en strákarnir sem um ræðir eru tveir meðlimir hljómsveitarinnar Rari Boys sem kalla sig Ízleif og Hlandra.

Vísanir í Jóa P og Króla

Vísanir í textum plötunnar Yfirvinna eru gjarnan í önnur rapplög. Þar má til dæmis nefna lagið „Bara svona“ en þar er vísað í lag Jóa P og Króla „B.O.B.A“. Í lagi þeirra er talað um bíltegundina i30 Hondu en Brynjar snýr upp á þeirra texta og segir: „Þetta er Mercedes Benz, ekki Honda. Ekki Jói P og Króli en þetta er motherfucking bomba.“

Brynjar er með annað tónlistarfólk með sér í liði á nýju plötunni, Alviu Islandia, 24/7, Gvdjon, Silkiklút og áðurnefnda Ízleif og Hlandra. „Þetta eru allt bara vinir mínir,“ segir Brynjar, en það voru einmitt vinir hans sem fengu hann til að rappa til að byrja með. „Strákarnir voru alltaf að gera freestyle-rapp og eitthvað og mér fannst það alltaf spennandi. Ég hlustaði á þá rappa mjög lengi og síðan fengu vinir mínir mig bara til þess að byrja að rappa og ég fór að æfa mig í því.“

Eftir að Brynjar sendi frá sér síðustu plötu, Plús hús , fékk hann sér húðflúr sem var mjög líkt plötuumslaginu. Spurður hvort hann ætli að fá sér annað húðflúr nú þegar önnur platan hans er komin út segir Brynjar: „Já, ég gæti alveg gert það. Ég meina, af hverju ekki?“

Það er ýmislegt á döfinni hjá Brynjari en í nánustu framtíð ætlar hann að einbeita sér að því að gefa út smáskífur. „Ég er með nokkuð mörg ný lög tilbúin. Ég ætla bara að fara að gefa út smáskífur og vinna með mismunandi liði. Það er gaman að breyta til og vinna með nýju fólki.“