Jakob Örn Sigurðarson
Jakob Örn Sigurðarson — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Körfuknattleiksmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson hefur skrifað undir eins árs samning hjá Borås í Gautaborg og mun því leika áfram með liðinu.

Körfuknattleiksmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson hefur skrifað undir eins árs samning hjá Borås í Gautaborg og mun því leika áfram með liðinu. Jakob tjáði Morgunblaðinu í vor að Borås væri fyrsti kostur, þar sem fjölskyldan væri ekki að flytja burt af svæðinu á næstunni. Jakob gekk til liðs við félagið sumarið 2015 en hafði áður verið í sex ár hjá Sundsvall og varð þar meistari árið 2011. Jakob er 36 ára og uppalinn í KR en lék áður í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Ungverjalandi. kris@mbl.is