Fundarhöld Boðað var til fundar hjá borgarráði Reykjavíkur að frumkvæði minnihlutans sem líkti fundinum við eins konar neyðarfund. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði fundinn árangurslausan þrátt fyrir mikilvægi hans.
Fundarhöld Boðað var til fundar hjá borgarráði Reykjavíkur að frumkvæði minnihlutans sem líkti fundinum við eins konar neyðarfund. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagði fundinn árangurslausan þrátt fyrir mikilvægi hans. — Morgunblaðið/Hari
Teitur Gissurarson teitur@mbl.is „Allar tillögur sem við lögðum fram voru annað hvort felldar, vísað frá eða frestað.

Teitur Gissurarson

teitur@mbl.is

„Allar tillögur sem við lögðum fram voru annað hvort felldar, vísað frá eða frestað. Nema tillögu okkar sjálfstæðismanna og stjórnarandstöðunnar um færanlegt húsnæði sem neyðarrúrræði og tillögu um greiningu á þörf um húsnæðislausn frá sósíalistum – sem við studdum.“

Þetta sagði Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, eftir aukafund borgarráðs Reykjavíkur um mál heimilislausra í gær.

Fundurinn hófst klukkan ellefu og stóð yfir í rúma fimm tíma, en Marta sagði fundinn þrátt fyrir það hafa verið árangurslausan að því leyti að ekki nema tvær tillögur minnihlutans náðu fram að ganga.

„Bráðavandinn er ennþá til staðar og hann er ekki leystur. Hann leystist ekki á þessum fundi.“

Ákveðið skilningsleysi

Umræddri tillögu um færanlegt húsnæði var vísað til fundar velferðarráðs 10. ágúst næstkomandi.

„Þetta er fundur sem verður haldinn að beiðni okkar minnihlutans. Við höfðum að vísu beðið um að hann yrði haldinn fyrr en það var ekki orðið við því. Það má eiginlega segja að það sé verið að velta vandanum á undan sér í stað þess að grípa til aðgerða strax,“ sagði Marta og bætti við: „Þetta voru ellefu tillögur sem við fluttum ásamt öðrum flokkum í stjórnarandstöðunni. Mér fannst andrúmsloftið vera þannig að ákveðið skilningsleysi væri á lofti gagnvart þeim vanda sem uppi er.“

Umrædd tillaga sjálfstæðisfólks kvað á um að kannaðir yrðu möguleikar á að komið yrði upp færanlegu húsnæði sem neyðarúrræði en Marta sagði að um einhverskonar smáhýsi væri að ræða, sem nota ætti til bráðabirgða á meðan verið væri að finna varanlegri lausn fyrir þá sem eru í vanda.

Benda á aðra til að leysa málið

Það kvað við svipaðan tón þegar Morgunblaðið náði tali af Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, eftir fundinn í gær. Benti hún einnig á að bráðavandi í húsnæðismálum væri enn til staðar.

„Mér fannst nú þeir sem stjórna borginni vera í mikilli vörn – vísa í að vinna sé farin af stað og að hitt og þetta sé í ferli. Það sem vantaði algjörlega í þeirra tillögur var lausn á bráðavanda. Þau benda meira og minna á ríkið og önnur sveitarfélög og einhverja aðra aðila sem eiga að leysa málið fyrir þau. Það er algjörlega óásættanlegt,“ sagði hún og hélt áfram: „Fundurinn var langur og strangur og við börðumst hetjulega fyrir okkar málefnum með misjöfnum árangri. Tvær tillögur [frá minnihluta] voru samþykktar. Öðrum var vísað í ráð og nefndir, leitað umsagna og vísað hingað og þangað,“ sagði Vigdís.

Hún benti einnig á að fyrirspurnir frá henni, sem vörðuðu málefni fundarins alls, hefðu ekki fengið meðferð á fundinum.

„Ég varð fyrir vonbrigðum með það að ég var búinn að leggja fram fyrirspurnir á síðasta borgarráðsfundi en kerfið gefur sér allt að þrjár vikur til að svara fyrirspurnum frá borgarfulltrúum. Það er auðvitað hámarkið svo ég bað um það í gær að svör við þessum fyrirspurnum myndu koma [í gær] því það er ekkert lágmark. En það var ekki orðið við því og borið við sumarfríum og tímaleysi. Þær snertu allan þennan fund,“ sagði hún.

Vigdís minnti einnig á mikilvægi gagnsæis í stjórnkerfinu og sagði: „Fundurinn byrjaði þannig að heimilislausir voru mættir í ráðhúsið, sem sýnir það hvað það er mikilvægt fyrir borgina að opna stjórnkerfið sitt og birta dagskrá fundar fyrirfram á netinu, bæði fyrir fjölmiðla og aðra sem hafa áhuga á málaflokknum.“

Átta tillögur samþykktar

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem barst eftir fundinn í gær sagði að átta tillögur meirihluta borgarráðs um aðgerðir í húsnæðismálum hefðu verið samþykktar á fundinum.

Þar sagði að meðal þess sem hefði verið samþykkt væri að útvega fimm lóðir fyrir allt að 25 smáhýsi á árinu 2018, bæta þjónustu í samstarfi við ríkið um heilbrigðisþjónustu utangarðsfólks og að velferðarsvið ljúki tillögugerð um áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis fyrir fólk sem telst utangarðs.

Einnig voru samþykktar tillögur um viðræður við ríkisvaldið og verkalýðshreyfinguna um breytingar á reglum um stofnframlög, áskorun til ráðherra húsnæðismála um að sveitarfélögum verði gert skylt að fjölga félagslegum íbúðum að ákveðnu hlutfalli við íbúafjölda og að teknar verði upp viðræður við önnur sveitarfélög um þátttöku í kostnaði við úrræði sem íbúar viðkomandi sveitarfélaga nýta sér en borgin ber hitann og þungann af.