Enski pönkrokkarinn Billy Idol heldur tónleika í kvöld kl. 20 í Laugardalshöll og mun á þeim flytja þekktustu smelli sína ásamt fleiri lögum. Idol er orðinn 62 ára og naut hvað mestra vinsælda á níunda áratugnum.
Enski pönkrokkarinn Billy Idol heldur tónleika í kvöld kl. 20 í Laugardalshöll og mun á þeim flytja þekktustu smelli sína ásamt fleiri lögum. Idol er orðinn 62 ára og naut hvað mestra vinsælda á níunda áratugnum. Yfir 40 milljónir eintaka af hljómplötum hans hafa selst á heimsvísu. Gítarleikarinn Steve Stevens er í hljómsveitinni sem fylgir Idol en þeir hafa starfað saman í árafjöld.