Pink svaraði fullum hálsi.
Pink svaraði fullum hálsi. — Morgunblaðið/
Pink neyddist til að aflýsa tónleikum í Ástralíu af heilsufarsástæðum. Náði ljósmyndari mynd af henni með dóttur sinni á ströndinni þar sem hún var sökuð um að vera í afslöppun.
Pink neyddist til að aflýsa tónleikum í Ástralíu af heilsufarsástæðum. Náði ljósmyndari mynd af henni með dóttur sinni á ströndinni þar sem hún var sökuð um að vera í afslöppun. Í kjölfarið birti söngkonan langa færslu á Twitter þar sem hún sagðist vera að reyna sitt besta, fjölskyldufríið hafi verið löngu planað og hún þurfi að sinna börnunum þrátt fyrir heilsuleysi. Hafi hún veikst tvisvar á Ástralíutúrnum en keyrt sig í gegnum tónleikana. Sagði hún ljósmyndina alls ekki segja allt þar sem á hana vantaði læknaheimsóknirnar tvo daga í röð og öll lyfin sem hún hafi þurft að innbyrða.