Greta Garbo og Robert Taylor á dramatískri stundu í Kamelíufrúnni.
Greta Garbo og Robert Taylor á dramatískri stundu í Kamelíufrúnni.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ástarmyndir gömlu Hollywood sem eiga enn erindi við okkur eru fjölmargar, enda gerist rómantíkin ekki betri en í dramatísku svart-hvítu umhverfi þess tíma. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
„Ég hef elskað þig eins mikið og ég er fær um að elska. Ef það var ekki nóg er það ekki mín sök. Við erum ekki skaparar okkar eigin hjarta.“

Kamelíufrúin , Camille, frá 1936 er grenjuástarmynd en þar sem grátur er samkvæmt hörðustu vísindum sannreyndur sem hollur og hreinsandi er kvöldstund með Gretu Garbo og Robert Taylor sannkallað detox. Frægt er að í öðrum kvikmyndum horfa persónur stundum á Camille og gráta, svo sem í Annie þegar farið er í bíó.

Myndin byggir á skáldsögu frá 1848 og í leikstjórn George Cukor segir hún sérlega sorglega sögu Parísarbúans Marguerite Gautier, sem verður ástfangin af sér mun yngri manni, Armand. Án þess að gefa of mikið upp fyrir þá sem hafa ekki séð myndina vill faðir Armands ekki að hann sé í samneyti við Gautier, sem er vel þekktur Parísarbúi með umdeilda fortíð. Gautier verður þá alvarlega veik, sem hefur mikil áhrif á framþróun myndarinnar. Lokaatriðinu gætu fylgt ekkasog.

„Ef aðeins þú gætir hafa deilt með mér þessum augnablikum, ef aðeins þú hefðir áttað þig á hvað þú áttir, hverju þú hafðir aldrei tapað. Ef aðeins.“

Letter from an Unknown Woman í leikstjórn hins þýskættaða Max Ophüls var frumsýnd 1948 og skartar Joan Fontaine og Louis Jourdan í aðalhlutverkum. Sagan segir frá ungri stúlku í Vín, Lísu, sem verður ástfangin úr fjarlægð af píanóleikaranum Stefan sem býr í sama húsi og hún. Hún hlustar á hann æfa sig og er í mörg ár ástfangin af honum án þess að gefa sig á tal við hann. Í myndinni fylgjast áhorfendur með því hvernig leiðir Stefáns og Lísu skerast örsjaldan á langri ævi og hversu dramatískar afleiðingar þau kynni hafa á líf þeirra beggja.

„Ég elska þig. Ég hef elskað þig frá fyrsta augnablikinu sem ég sá þig. Ég held ég hafi elskað þig jafnvel áður en ég sá þig.“

Elizabeth Taylor, Montgomery Clift og Shelley Winters eru upp á sitt besta í ástardramanu A Place in the Sun frá 1951. Ekki aðeins vann myndin til sex Óskarsverðlauna heldur er hún fyrsta myndin í sögunni til að vinna Golden Globe-verðlaunin fyrir bestu myndina. Myndin fjallar um ungan fátækan mann sem vinnur sig til metorða í verksmiðju frænda síns. Hann verður ástfanginn af samstarfskonu sinni og þau þróa með sér samband. Þegar hann hefur komist til metorða kynnist hann efnaðri konu af hærri stigum og þau fara að vera saman en þá er kærastan hans fyrri orðin ófrísk. A Place in the Sun er í senn ástarsaga og dramatísk glæpasaga.

„Ó, elsku vinur, hjarta mitt barðist í brjósti mér þegar ég gekk inn á pósthúsið og þarna varstu, í hólfi 237. Ég tók þig úr umslaginu og las þig, las þig á staðnum.“

The Shop Around the Corner með Margaret Sullavan, James Stewart og Frank Morgan í aðalhlutverkum er ástarmynd af aðeins léttari gerð, eins konar You've Got Mail þess tíma. Myndin segir frá samstarfsfólki í leðurverslun sem er rómantískir pennavinir hvort annars án þess að vita að þau eru í raun að skrifa hvort öðru en í daglegu lífi sinni í versluninni þola þau ekki hvort annað. Myndin er í leikstjórn Ernst Lubitsch, sem fékk það orð á sig að vera fágaðasti leikstjóri Hollywood, með hárfínan herramannshúmor í rómantískum gamanmyndum sínum. Myndin þykir hans best heppnaða og hefur verið kölluð ein af bestu bíómyndum Bandaríkjanna, enda með fullt hús stiga til dæmis hjá gagnrýnendum Rotten Tomatoes, 100%.

„Það eina sem ég veit er að ég var ástfangin af þér áður en þú fórst og ég er ástfangin af þér nú. Allt hitt getur hafa breyst en ekki sú staðreynd.“

Strax eftir að síðasti heimsstyrjöld lauk gerði Hollywood eitt sitt besta eftirstríðsdrama og árið 1946 var kvikmyndin The Best Years of Our Lives tilbúin til frumsýningar. Myndin segir sögu þriggja bandarískra hermanna sem koma heim að loknu stríði og uppgötva að þeir sjálfir og fjölskyldur þeirra eru ekki eins og þau voru fyrir stríð. Senurnar eru þrungnar heitum ástríðum og átökum. Framleiðandi myndarinnar, Samuel Goldwyn, fékk hugmyndina að myndinni árið 1944 þegar hann las grein í Times um hvað hermenn ættu erfitt með að koma heim og aðlagast sínu gamla lífi að nýju. Myndin vann til sjö Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta myndin.

„Ég vil sjá hvernig ástin lítur út þegar hún er í sigurvímu. Ég hef ekki hlegið almennilega í heila viku.“

Ein skemmtilegasta rómantíska gamanmynd gömlu Hollywood er tvímælalaust It Happened One Night í leikstjórn Frank Capra, en margir hafa séð seinna verk hans, It's a Wonderful Life, sem er ekki síðri ástarmynd. Þessi er þó öllu fyndnari.

Claudette Colbert leikur hástéttarpíu sem verður ástfangin af eilítið ósvífnum og kjaftforum fréttamanni sem Clark Gable leikur en milljarðamæringurinn faðir hennar vill ekki sjá að hún sé í slagtogi við slíka menn. Samtöl turtildúfnanna og samskipti eru óborganleg og magna upp rómantíkina. Myndin varð sú fyrsta í sögunni til að vinna fimm aðalverðlaun Óskarshátíðarinnar en velgengni hennar kom leikurunum sjálfum á óvart, sem héldu að þessi létta rómantík myndi fá skelfilega dóma. Aðalleikkonan mætti ekki einu sinni á Óskarsverðlaunin, hún var svo viss um að vinna ekki verðlaunin sem hún var tilnefnd til, sem hún vann þó.

„Við sögðum margt og mikið í gærkvöldi. Þú sagðir að ég ætti að hugsa fyrir okkur bæði. Jæja, ég hef gert það síðan þá og niðurstaðan er alltaf sú sama; þú átt að fara í þetta flug með Viktori, þar sem þú átt heima.“ (Casablanca)

Það er ekki hjá komist að nefna nokkrar myndir sem eru vissulega á lista með dramatískum ástarmyndum gömlu Hollywood en svo oft hefur verið fjallað um og margir séð. Ef einhver á eftir að sjá Gone with the Wind, Casablanca, Singin' in the Rain, Miracle on 34th Street eða City Lights er það fyrsta verk næsta bíókvölds í sumar.