Heima Hjónin Jón Bernharð Kárason og Þórunn Beck í eldhúsinu.
Heima Hjónin Jón Bernharð Kárason og Þórunn Beck í eldhúsinu. — Morgunblaðið/Emil
Emil Thorarensen Eskifirði Það var heldur óskemmtileg reynsla sem hjónin Jón Bernharð Kárason, fyrrverandi sjómaður en núverandi safnari og listamaður á Fáskrúðsfirði, og Þórunn Beck, starfsmaður Loðnuvinnslunnar, urðu nýlega fyrir.

Emil Thorarensen

Eskifirði

Það var heldur óskemmtileg reynsla sem hjónin Jón Bernharð Kárason, fyrrverandi sjómaður en núverandi safnari og listamaður á Fáskrúðsfirði, og Þórunn Beck, starfsmaður Loðnuvinnslunnar, urðu nýlega fyrir.

Jón Bernharð brá sér heim um hádegisbil einn dag í lok júní til að fá sér hressingu í einbýlishúsi sínu, sem var ólæst. Þegar hann fór inn í eldhús til að hita sér kaffisopa varð hann var við hreyfingu í svefnherberginu og sá mann gramsa í kommóðuskúffum, þar sem m.a. voru geymdir erfðagripir kynslóð fram af kynslóð.

Jón Bernharð, sem er stór og stæðilega vaxinn sjómaður, venti kvæði sínu í kross frá kaffikönnunni og yfir til hins óboðna gests og spurði hvern andskotann hann væri að gera í sínu húsi. Skipaði hann gestinum að hafa sig á brott hið snarasta.

Hinn óboðni gestur sá sitt óvænna og hljóp á dyr en sló í leiðinni Jón Bernharð bylmingshögg í magann. Jón hljóp á eftir honum á sokkaleistunum og sá þjófinn fara inn í bifreið sem beið fyrir neðan bakkann og brunaði á burt.

Lögreglan á staðnum var kölluð til og veitti bílnum eftirför en mennirnir sinntu ekki blikkandi bláum ljósunum. Brá lögreglan á það ráð að fá liðsinni kollega sinna á Héraði, sem komu á móti þjófunum og króuðu þá af í Breiðdalsvík. Þar valt bíll þeirra út af veginum og þeir náðust.

Í samtali við fréttaritara segja þau hjón Jón Bernharð og Þórunn ótrúlegt að hafa upplifað svona uppákomu, sem hafi haft langvarandi neikvæð sálræn áhrif á þau bæði. Segir Þórunn til að mynda að hún sofi ekki heilan svefn og heyri hún eitthvert þrusk á nóttunni sé hún með varann á og pikki í Jón bónda sinn og segi: það er einhver að koma.

Jón segir að til aðdáunar séu fumlaus og öguð vinnubrögð lögreglumannanna Elvars Óskarssonar og Grétars Geirssonar.