Kanye West segir afrek Steve Jobs hvetja sig áfram á hverjum degi.
Kanye West segir afrek Steve Jobs hvetja sig áfram á hverjum degi. — AFP
Tónlist Kanye West þakkar Steve Jobs og Apple fyrir að hafa verið helsta hvatning hans í lífinu.
Tónlist Kanye West þakkar Steve Jobs og Apple fyrir að hafa verið helsta hvatning hans í lífinu. Rapparinn tísti þar sem hann þakkaði tæknirisanum og stofnanda hans, Jobs, sem lést 2011, fyrir að hafa veitt sér og jarðarbúum innblástur með afrekum sínum en tilefnið er að í vikunni varð Apple fyrsta fyrirtækið í heiminum til að vera metið á yfir eina billjón Bandaríkjadala á almennum hlutabréfamarkaði. Kanye West gaf eiginkonu sinni, Kim Kardashian West, hlutabréf í Apple í jólagjöf. Rapparinn hefur líkt sér við Jobs og kallað sjálfan sig Steve Jobs poppmenningarinnar.