Roberto Piano fékk afnot af Toyota Landcruiser 150.
Roberto Piano fékk afnot af Toyota Landcruiser 150.
K100 og Toyota á Íslandi gáfu heppinni fjölskyldu afnot af glæsilegum Toyota Landcruiser 150 um verslunarmannahelgina. Hvati og Hulda í Magasíninu hringdu í þann heppna fyrir helgi en sá hét Roberto Piano.
K100 og Toyota á Íslandi gáfu heppinni fjölskyldu afnot af glæsilegum Toyota Landcruiser 150 um verslunarmannahelgina. Hvati og Hulda í Magasíninu hringdu í þann heppna fyrir helgi en sá hét Roberto Piano. Konan hans skráði hann í leikinn og kom honum svo sannarlega á óvart á fimmtugsafmælisdaginn. Ekki nóg með að fá afnot af glæsibifreiðinni heldur var skottið fullt af glaðningi. Þar voru veiðistangir frá Veiðihorninu í Síðumúla, kleinuhringir frá Krispy Kreme í Smáralind, Frisbígolfsett frá Frisbígolf-búðinni, 30 þúsund króna gjafabréf frá Hagkaup og RC Cola ásamt vatni frá Klaka.