— Morgunblaðið/Valli
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ekki fá allir verslunarmenn frí á mánudaginn þótt stórhátíðardagurinn sé helgaður þeim. Stéttarfélagið VR skoraði á verslunareigendur að gefa starfsfólki sínu frí á mánudeginum þar sem margar verslanir eru opnar.

Frídagur verslunarmanna er gamalgróin hefð sem teygir sig aftur til nítjándu aldar þegar verslunareigendur í Reykjavík gáfu starfsmönnum sínum frí á rúmhelgum degi. Í fyrstu var heiti dagsins bókstaflegt en eftir seinni heimsstyrjöldina varð hann smám saman að almennum frídegi. Á sjöunda áratugnum fóru landsmenn svo að nýta helgina til að efna til útihátíða víðsvegar um land og ferðast víðsvegar um land. Í dag er verslunarmannahelgin stærsta ferðahelgi ársins en frídagur verslunarmanna virðist að hluta til hafa glatað merkingu sinni þar sem margar verslanir standa opnar.

Frídagur allra nema verslunarmanna

Stéttarfélagið VR hefur lengi bent á að frídagurinn sé að útvatnast. Á heimasíðu sinni skoraði VR fyrr í vikunni á atvinnurekendur að gefa verslunarfólki frí á frídegi verslunarmanna. Þar kemur fram að á síðustu árum hafi færst í aukana að verslanir og þjónustufyrirtæki hafi opið á frídegi verslunarmanna sem veldur því að verslunarfólk þurfi að standa vakt á þessum degi sem er því sérstaklega helgaður.

Stefán Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri VR, segir að félagið fái tíðar fyrirspurnir um frídag verslunarmanna. „Það er mikilvægt að fólk sé meðvitað um að það er ekki vinnuskylda á þessum degi. Það þarf að semja sérstaklega um að unnið sé á honum eins og öðrum stórhátíðardögum. Þessi þróun hefur átt sér stað hægt og bítandi á undanförnum árum og það er oft sagt að þeir einu sem vinni á frídegi verslunarmanna séu verslunarmenn, þótt það sé ekki alveg rétt.“

Stefán segir að opnar verslanir séu tíðari í mat- og dagvörugeiranum en í sérvörugeiranum. „Ástæðan er einfaldlega að fólk vill alltaf hafa opið. Það eru þó fyrirtæki sem standa sig mjög vel í þessum málum og eiga hrós skilið. Til dæmis hafa Fjarðarkaup lengi haft lokað yfir alla verslunarmannahelgina. og Bónus hefur lokað á mánudeginum. Við viljum hvetja fólk sem vill sýna málinu samstöðu til að versla ekki á þessum degi.“

Gamalgrónar hefðir

Gísli Sigurbergsson, verslunarstjóri Fjarðarkaupa, segir að verslunin hafi haft lokað yfir verslunarmannahelgina síðan hún opnaði. „Búðin er fjörutíu og fimm ára gömul og það voru einhver ár þar sem var ekki opið á laugardögum hjá okkur. Svo hefur aldrei verið opið á sunnudögum, svo það hefur alltaf verið lokað hjá okkur um þessa helgi,“ segir Gísli.

„Starfsfólkið okkar er auðvitað mjög ánægt með þetta og okkar góðu fastakúnnar gefa okkur mikið hrós fyrir þetta.“ en verslunin fékk jákvæð viðbrögð við færslu sinni um lokunina á Facebook síðu sinni. Gísli segist ekki hafa orðið var við viðskiptavini sem séu óánægðir með þetta. „Þeir fara þá bara eitthvað annað að versla. Maður gerir sér grein fyrir því að það væri ekki hægt að hafa allar búðir lokaðar um þessa helgi. Ég held samt að fólk kæmist alveg af þótt væri lokað á mánudeginum, á þessum frídegi verslunarmanna.“

Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir að lokunin hafi fylgt versluninni frá upphafi. „Það hefur verið lokað á frídegi verslunarmanna síðan hún var opnuð árið 1989. Starfsfólk okkar er ánægt með þetta og viðskiptavinir okkar hafa flestir sýnt þessu skilning í gegnum árin og finnst þetta sjálfsagt. Ef það er ekki lokað á frídegi verslunarmanna þá hvenær?“ segir Guðmundur. „Hvert fyrirtæki verður þó að taka þessa ákvörðun fyrir sig“ bætir hann við aðspurður hvort honum finnist að fleiri verslanir ættu að fylgja fordæmi þeirra.