SJÓNVARP Leikarinn Andrew Lincoln, sem fór með eitt aðahlutverkanna í níu þáttaröðum The Walking Dead, hefur nú gefið aðdáendum sínum skýringu á því hvers vegna hann hætti í þáttunum, sem notið hafa mikilla vinsælda.
SJÓNVARP
Leikarinn Andrew Lincoln, sem fór með eitt aðahlutverkanna í níu þáttaröðum The Walking Dead, hefur nú gefið aðdáendum sínum skýringu á því hvers vegna hann hætti í þáttunum, sem notið hafa mikilla vinsælda.
Skýringin er ósköp einföld: Hann saknaði barnanna sinna.
Lincoln býr með fjölskyldu sinni í Englandi en þættirnir eru teknir upp í Bandaríkjunum og standa tökurnar yfir í sex mánuði á ári.
Leikarinn segir í viðtali við Entertainment Weekly að það hafi einfaldlega verið tímabært að flytja heim.