Raforka Climeon afhenti fyrstu einingarnar hérlendis á dögunum á Flúðum.
Raforka Climeon afhenti fyrstu einingarnar hérlendis á dögunum á Flúðum.
Sænska tæknifyrirtækið Climeon og íslenskt samstarfsfyrirtæki þess, Varmaorka, hyggjast setja upp fjölda orkustöðva um allt land, en fyrstu fjórar stöðluðu einingarnar frá Climeon eru nú komnar til Flúða og uppsetning hafin.

Alls hefur Varmaorka pantað 197 einingar frá Climeon fyrir átta milljarða króna.

Tæknin gerir kleift að vinna hreina raforku úr jarðvarmaorku á lághitasvæðum um allt land.

Climeon opnaði á dögunum skrifstofu hér á landi.

Thomas Öström, forstjóri fyrirtækisins, segir að hver eining framleiði 150 KW af orku og hægt sé að raða einingum saman eftir aðstæðum á hverjum stað.

Öström hvetur alla landeigendur til að skoða málið vandlega. 18