Handrit að grínatriðum fyrir kvikmynd grínhópsins Monty Python, The Holy Grail , fundust nýverið í skjalasafni Michaels Palin, eins meðlima grínhópsins.
Handrit að grínatriðum fyrir kvikmynd grínhópsins Monty Python, The Holy Grail , fundust nýverið í skjalasafni Michaels Palin, eins meðlima grínhópsins. Handritin fundust í skjölum Palins sem geymd hafa verið í breska þjóðarbókasafninu, British Library, þar sem skjöl hans eru geymd. Samkvæmt upplýsingum á vef The Guardian hefur Palin veitt leyfi fyrir því að þessi handrit verði birt. Monty Python hópurinn var einkar hugmyndaríkur og samdi mun fleiri grínatriði en rötuðu í þætti hans og kvikmyndir.