[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
15. umferð Guðjón Þór Ólafsson gudjon@mbl.is Eftir langa bið komst Fylkir loksins á sigurbraut á ný þegar liðið skemmdi Þjóðhátíðina fyrir heimamönnum með 1:0-sigri á ÍBV um liðna helgi fyrir framan 1.577 áhorfendur á Hásteinsvelli.

15. umferð

Guðjón Þór Ólafsson

gudjon@mbl.is

Eftir langa bið komst Fylkir loksins á sigurbraut á ný þegar liðið skemmdi Þjóðhátíðina fyrir heimamönnum með 1:0-sigri á ÍBV um liðna helgi fyrir framan 1.577 áhorfendur á Hásteinsvelli. Fyrir utan fyrsta korterið var Fylkisliðið í heild sterkari aðilinn í leiknum og munaði þar mikið um Ásgeir Börk Ásgeirsson á miðjunni sem vann gríðarlega vel fyrir liðið. Ásgeir Börkur fékk 2M frá Morgunblaðinu fyrir frammistöðu sína í leiknum og er sá leikmaður sem fjallað verður um að lokinni 15. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu.

Mikilvægur sigur

Fyrir leikinn gegn ÍBV hafði Fylkir ekki unnið leik í næstum tvo mánuði. Sigurinn var því mjög kærkominn. „Eftir á að hyggja var þetta leikur sem við þurftum að vinna ef við ætluðum okkur einhverja hluti. Sem betur fer unnum við þennan leik sem var gífurlega mikilvægt.“

Spurður út í frammistöðu hans í leiknum sagði Ásgeir Börkur að liðið sem heild hefði spilað vel og að það hefði gert honum auðveldara fyrir inn á vellinum: „Ég held að maður spili bara eins vel og liðið leyfir og kannski fyrir utan þessar fyrstu 10. mínútur vorum við að mínu viti frábærir. Við vorum þéttir og Aron markmaður frábær og strákarnir þar fyrir framan frábærir og þegar liðið er þétt er vinnan fyrir okkur hina auðveldari.“

Inntur eftir því hvernig honum hefði fundist að spila á miðri Þjóðhátíð sagði hann að það hefði verið mjög skemmtilegt: „Það var frábært. Við fengum gott veður, það var fullt af fólki og bara stemning. Við erum stemningslið og þetta voru aðstæður sem hentuðu okkur vel. Við skoruðum snemma og það gaf okkur sjálfstraust.“

Góð innkoma Ólafs Inga

Sigurinn á ÍBV var annar leikurinn í röð sem Fylkir hélt markinu sínu hreinu, því áður gerði liðið markalaust jafntefli við Val, en fram að því hafði Fylkir verið í vandræðum með varnarleikinn og fengið á sig mikið af mörkum. Þetta voru tveir fyrstu leikir Ólafs Inga Skúlasonar sem var að spila sínu fyrstu leiki í sumar eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku:

„Liðið í heild sinni og þjálfarar settust bara niður fyrir Valsleikinn og án þess að fara eitthvað dýpra í það töluðum við bara um það að við þyrftum að gyrða okkur í brók. Það væri náttúrlega óásættanlegt hvað það væri mikið af mörkum að leka inn hjá okkur og að við þyrftum að finna einhverja leið til að stoppa í götin. Svo er frábært að fá Óla inn í þetta sem hefur alla þessa reynslu og feril til að gefa frá sér og hann er auðvitað búinn að vera hrikalega stór partur af þessu í þessum tveimur leikjum – að við séum rólegir og að við höfum sjálfstraust. Jú, jú, auðvitað er auðvelt að benda á Óla en hann hefur komið heldur betur inn í þetta og gert sitt og mikið meira en það.“

Flórídana-völlurinn loksins klár

Næstu þrír leikir Fylkis verða á heimavelli á Flórídana-vellinum sem er loksins að komast í gagnið eftir mikla bið. Ásgeir Börkur sagði að það væri jákvætt að völlurinn væri orðinn klár og að liðið gæti spilað sína leiki í Árbænum: „Auðvitað er frábært að fá að spila loksins á sínum heimavelli og það er allt öðruvísi stemning þegar maður mætir inn í klefa og labbar síðan út á sinn heimavöll. Það leggst bara mjög vel í mig og vonandi höldum við áfram að taka skref upp á við og nýtum okkur þetta og náum okkur í þau stig sem við þurfum.“