Furðulegar sagnir.

Furðulegar sagnir. N-Allir

Norður
K953
ÁKG5
KG94
5

Vestur Austur
864 D102
94 10732
D73 10
KG984 ÁD763

Suður
ÁG7
D86
Á8652
102

Suður spilar 4.

Chris Willenken vakti á grandi í norður og var hækkaður í þrjú. Lauf út og einn niður, eldsnöggt. Spilið er frá síðustu lotunni í Spingold-úrslitaleik GAWRYS (Klukowski, Helness, Helgemo, Zimmermann, Multon) og ROSENTHALS (Silverstein, Berkowitz, Zur Campanile, Ginossar, Willenken), sem Gawrys vann 131-98.

Hugsanlega var Willenken að reyna að skapa sveiflu með þessari furðulegu grandopnun. En sagnir voru síst betri á hinu borðinu: Geir Helgemo vakti á 1, Tor Helness í suður sagði 2G (áskorun) og Helgemo 3G. Og lauf út frá David Berkowitz í vestur.

Migry Zur Campanile tók á Á og spilaði 6 til baka – þriðja hæsta frá ríkjandi lengd, eins og reglan kveður á um. En sexan hefði líka verið rétta spilið frá Á63 og þá ætti sagnhafi D1072. Berkowitz taldi hið síðarnefnda líklegra í ljósi sagna og skipti yfir í hjarta.

Það dugði Tor í tíu slagi.