Forsetar Donald Trump og Vladimír Pútín hittust í Helsinki í júlí. Illa hefur gengið að bæta samskipti ríkjanna.
Forsetar Donald Trump og Vladimír Pútín hittust í Helsinki í júlí. Illa hefur gengið að bæta samskipti ríkjanna. — AFP
Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Rússar segjast nú undirbúa eigin mótaðgerðir eftir að Bandaríkjamenn hófu nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi fyrr í vikunni.

Þorgrímur Kári Snævarr

thorgrimur@mbl.is

Rússar segjast nú undirbúa eigin mótaðgerðir eftir að Bandaríkjamenn hófu nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi fyrr í vikunni. Ástæðan sem gefin hefur verið fyrir nýju efnahagsþvingununum er árás sem gerð var með rússnesku taugaeitri á rússneska fyrrverandi njósnarann Sergej Skrípal og dóttur hans, Júlíu, í Bretlandi í mars.

Skrípal-feðginin komust bæði lífs af en bresk kona, Dawn Sturgess, lést í síðasta mánuði eftir að hafa ásamt kærasta sínum komist í snertingu við sams konar eitur. Grunur leikur á um að eitrið sem banaði Sturgess hafi komið úr sama skammti og var notaður á Skrípal-feðginin.

Talið er að nýju refsiaðgerðirnar gætu komið í veg fyrir innflutning að andvirði hundraða milljarða íslenskra króna til Rússlands. Meðal þess sem kveðið er á um í aðgerðunum eru takmarkanir á útflutningi tæknibúnaðar til Rússlands sem talinn er varasamur með tilliti til öryggismála.

Ákvörðun byggð á „hlutlægum staðreyndum“

Áætlað er að refsiaðgerðirnar taki gildi hinn 22. ágúst og að haldið verði í enn strangari refsiaðgerðir ef Rússland kemur ekki til móts við kröfur Bandaríkjanna innan 90 daga. Kröfurnar ganga út á að Rússland opni vísinda- og öryggisstofnanir sínar fyrir alþjóðlegum eftirlitsmönnum svo hægt verði að ganga úr skugga um hvort verið sé að framleiða þar efnavopn. Ekki er búist við því að Rússar fallist á kröfurnar.

„Leikhús fáránleikans heldur áfram,“ sagði Dímítrí Políanskij, einn fulltrúa Rússa hjá Sameinuðu þjóðunum, um refsiaðgerðirnar. „Engar sannanir, engar vísbendingar, engin rök, ekkert sakleysi uns sekt er sönnuð, bara getgátur. Aðeins ein regla: Kennum Rússlandi um allt, sama hversu fáránlegt og falskt það er. Bjóðum velkomnar Bandaþvinganir Ameríku!“

Rússar hafa neitað því statt og stöðugt að þeir standi á bak við árásirnar en Bandaríkjamenn segjast hafa fengið „sannfærandi upplýsingar“ frá Bretum um að Rússar séu sekir í málinu. Þá hafi þeir komist að eigin niðurstöðum síðustu helgi og byggi ákvarðanir sínar á „hlutlægum staðreyndum“.