Bókakaffið á Selfossi og Bókaútgáfan Sæmundur standa, í samstarfi við alþjóðasamtök Bókaálfa, fyrir bókafeluleik á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi sem hefst í dag og stendur til sunnudags. Bækurnar eru ætlaðar finnendum sínum til eignar og ánægju.
Bókakaffið á Selfossi og Bókaútgáfan Sæmundur standa, í samstarfi við alþjóðasamtök Bókaálfa, fyrir bókafeluleik á bæjarhátíðinni Sumar á Selfossi sem hefst í dag og stendur til sunnudags. Bækurnar eru ætlaðar finnendum sínum til eignar og ánægju. Þeir eru hvattir til að deila fundnum bókum á instagram með merkinu #ibelieveinbookfairies.