Eyþór Arnalds
Eyþór Arnalds
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Eyþór Arnalds segir frá því á Netinu að hann hafi verið í útvarpsviðtali ásamt Heiðu Björg Hilmisdóttur, formanni velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanni Samfylkingarinnar.

Eyþór Arnalds segir frá því á Netinu að hann hafi verið í útvarpsviðtali ásamt Heiðu Björg Hilmisdóttur, formanni velferðarráðs Reykjavíkur og varaformanni Samfylkingarinnar. Þar hafi Heiða ítrekað þá skoðun sína að „hátt byggingargjald hjá Reykjavíkurborg hefði engin áhrif á verð íbúða“.

Um þetta sagði Eyþór: „Ef þessi kenning væri rétt hefðu opinber gjöld engin áhrif á bensínverð.

Og þá hefðu tollabreytingar engin áhrif á verð á bílum.

Ef þessi nýja hagfræðikenning stæðist væri best fyrir borgina að hækka byggingarréttargjaldið úr ca 5 milljónum í 50 milljónir á íbúð. Hagnaðinn væri hægt að nota til að stöðva skuldasöfnun borgarsjóðs. Og íbúðir í borginni væru áfram á sama verði. Ekki satt?

Svo voru það óbyggðu íbúðirnar fyrir lágtekjufólk sem áttu að vera þúsund í byggingu. Það var víst mismæli.

Verst að meirihlutinn hefur áður haldið þessu fram. Voru það líka mismæli?

Með góðum vilja má telja 276 íbúðir í byggingu af þessu tagi. Það er langt frá því að vera 1.000.

Og enn lengra frá því að vera 3.000, en það var loforð Samfylkingarinnar fyrir rúmum fjórum árum.“

Hvenær ætlar borgarstjórnarmeirihlutinn að stíga inn í veruleikann og viðurkenna að fólk þarf að borga skattana og að það flytur ekki inn í íbúðir á glærum.