[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Fótbolti Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður einn þriggja íslenskra knattspyrnumanna sem leika í ensku úrvalsdeildinni í vetur.

Fótbolti

Sindri Sverrisson

sindris@mbl.is

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson verður einn þriggja íslenskra knattspyrnumanna sem leika í ensku úrvalsdeildinni í vetur. Aron komst upp með liði sínu Cardiff en var reyndar meiddur þegar liðið fagnaði úrvalsdeildarsætinu í maí. Svo gæti farið að hann tæki ekki þátt í fyrstu leikjum tímabilsins eftir erfitt sumar þar sem HM í Rússlandi tók sinn toll.

„Þetta sumar tók mikið á. Ég fékk ekki þetta dæmigerða hlé til að jafna mig eftir meiðslin í lok síðasta tímabils, svo ég hef hægt og rólega verið að byggja mig upp. Það tekur tíma og sjúkraþjálfarinn hér hjá Cardiff hefur verið mjög varkár og viljað vinna þetta þannig, sem ég tel rétt í stöðunni. En ég er ferskur í hausnum og hlakka til,“ segir Aron. Cardiff sækir Bournemouth heim í fyrsta leik á morgun.

Aron lék með Cardiff í úrvalsdeildinni tímabilið 2013-2014 og hefur raunar verið hjá velska félaginu í sjö ár. Hann segir mikla eftirvæntingu ríkja fyrir tímabilinu, sem þó gæti orðið erfitt fyrir Cardiff sem styrkti leikmannahópinn lítið.

„Síðast þegar við komumst upp þá hafði fólk búist meira við því, en á síðustu leiktíð tókum við þetta bara á seiglunni og það bjóst þannig séð enginn við þessu. Stuðningsmennirnir eru mjög ánægðir með þessa útkomu og eru spenntir. Við höfum aðeins náð að styrkja okkur, með mönnum sem hafa gert vel í næstefstu deild, en ekki gert nein stórkaup. Þetta verður erfitt tímabil,“ segir Aron, og bætir við:

„Þetta er ólíkt því sem við gerðum síðast þegar við vorum í úrvalsdeildinni, þegar farið var út á markaðinn og leikmenn fengnir sem pössuðu kannski ekki alveg inn. Við höfum reynt að halda kjarnanum og vonandi á það eftir að skila okkur góðu tímabili, en þetta verður erfitt. Vonandi fylgjum við eftir síðasta tímabili og byrjum strax að ná í stig því september verður erfiður mánuður, gegn liðunum í hópi sex bestu.“

Vel gert að halda Frey inni

Landsliðsfyrirliðinn verður vonandi kominn á fulla ferð eftir mánuð þegar Ísland leikur sína fyrstu leiki í Þjóðadeildinni, undir stjórn Svíans Eriks Hamréns. Aron tekur undir að mikil eftirsjá sé að Heimi Hallgrímssyni en hljómar ánægður með valið á arftaka hans:

„Ég er á því að KSÍ hafi gert vel. Það segir sig sjálft að það er alltaf erfitt og skrýtið að fara úr þjálfara sem hefur gert vel og náð góðum árangri í einhverjar áherslubreytingar. Ég held að KSÍ hafi gert vel með því að halda Freysa [Frey Alexanderssyni, aðstoðarlandsliðsþjálfara] í kringum þetta, til að halda í okkar hefðir og útskýra fyrir nýjum þjálfara hvernig við höfum gert hlutina. Ég tel að það sé jákvætt. Mér líst vel á nýjan þjálfara. Auðvitað les maður það sama og aðrir, frá Svíþjóð og allt það, en það er bara þannig, fólk hefur skoðun á þjálfurum rétt eins og á leikmönnum. Ég er bara spenntur fyrir komandi tímum með landsliðinu. Þetta verður erfitt, að halda áfram að ná árangri eins og við höfum náð, en ég veit að það er hugur í mönnum. Við viljum halda áfram á sömu braut. Reynslan af síðasta EM hvetur okkur til þess að komast aftur á EM, og Þjóðadeildin er líka öðruvísi keppni en við erum vanir sem spennandi verður að taka þátt í,“ segir Aron.