Emmy Rossum
Emmy Rossum
SJÓNVARP Leikkonan Emmy Rossum mun yfirgefa þættina Shameless eftir að níundu seríu þeirra lýkur. Rossum birti opið bréf til aðdáenda sinna á Facebook-síðunni sinni þar sem hún sagðist vita að þeir gætu haldið áfram án sín í bili.
SJÓNVARP Leikkonan Emmy Rossum mun yfirgefa þættina Shameless eftir að níundu seríu þeirra lýkur. Rossum birti opið bréf til aðdáenda sinna á Facebook-síðunni sinni þar sem hún sagðist vita að þeir gætu haldið áfram án sín í bili. Í kjölfarið staðfesti talsmaður þáttanna ákvörðun hennar en lýsti jafnframt yfir þakklæti yfir frammistöðu hennar til þessa.

Þættirnir hófust árið 2011 og byggjast á samnefndum breskum þáttum. Þeir segja frá hinni óreglulegu Gallagher-fjölskyldu en Rossum hefur farið með hlutverk Fionu Gallagher frá upphafi þáttanna.