Best er að byrja á kartöflunum, afhýða þær, skera niður og byrja á að sjóða þær. Þegar þær eru komnar í pottinn er fiskurinn útbúinn og gerður tilbúinn fyrir ofninn. Það eina sem er viðkvæmt fyrir biðinni er fiskurinn, maður vill bera hann á borð þegar hann er nýkominn úr ofninum.
Sætkartöflumús
Fyrir þrjá
ca 5-600 g sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita
1-2 kartöflur, skrældar og skornar í bita
½ rautt chili, fræhreinsað
safi úr ½ límónu (lime)
ca 1 msk. smjör
salt og pipar
Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir.
Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn.
Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til að kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt.
Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætkartöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan.
Þorskur með pistasíusalsa
ca 600 g þorskhnakkar eða þorskflök
salt og pipar
3-4 msk pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur)
3 msk. sítrónusafi og rifið hýði af ½ sítrónu
1 msk. olífuolía
ca 1 dl fersk steinselja, söxuð
¼-½ rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað
Ofninn hitaður í 220 gráður. Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar.
Því næst er blandað saman í skál: pistsíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er hellt yfir fiskinn.
Bakað í miðjum ofni við 220 gráður í ca 12-15 mínútur eða þar til fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki.
Sojasmjörsósa
3 msk. smjör
1 skarlottulaukur (hægt að nota ½ rauðlauk), saxaður fínt
1 hvítlauksrif, saxað fínt
1 tsk. rautt chili, saxað fínt
2-3 msk. sojasósa
1 msk. steinselja, söxuð smátt
Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í ca 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu.
Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram.