Andlit Boy de Chanel er kóreski leikarinn og fyrirsætan Lee Dong Wook.

[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Chanel kynnir nýjung í förðunarvörum sínum, sérstaka línu fyrir karlmenn. Línan ber nafnið Boy de Chanel og kemur á markað í dag laugardag í Suður-Kóreu.

Chanel telur að vörurnar eigi eftir að höfða til manna sem noti snyrtivörur sem hluta af daglegri rútínu, sem er mun algengara í Asíu en annars staðar og þá ekki síst í Suður-Kóreu.

Andlit Boy de Chanel er kóreski leikarinn og fyrirsætan Lee Dong Wook.

Karlmenn annars staðar í heiminum þurfa að bíða aðeins lengur eftir förðunarvörunum en þær verða fáanlegar í Chanel-búðum frá janúar 2019.