Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari og fjallagarpur, er einhver mesta hetja sem Ísland hefur alið og þótt víðar væri leitað.

Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari og fjallagarpur, er einhver mesta hetja sem Ísland hefur alið og þótt víðar væri leitað. Hún starfaði um skeið hjá Norðursiglingu á Húsavík og var þá meðal annars í áhöfn skonnortunnar Hildar sem sigldi til Grænlands og var þar í ferðum um Scoresbysund.

Heim komin skrifaði Vilborg gagnmerka ferðasögu sem hún sendi héraðsfréttablaðinu Skarpi til birtingar og var tekið fagnandi við sendingunni og greinin birt. En þó ekki fyrr en búið að var að breyta einni setningu í annars prýðilega rituðum pistli.

Þar fannst ritstjóranum, Jóhannesi Sigurjónssyni, að greinarhöfundur lýsti óþarflega frjálslegu aktíviteti áhafnarlima Hildar um borð og vart birtingarhæfu í fjölskyldublaði á borð við Skarp, en Vilborg reit:

„Oftast var möguleiki á að sæða uppi á dekki og var þá jafnan glatt á hjalla, enda náði hópurinn einkar vel saman.“

Ritstjóri ákvað strax að skjóta bókstafnum n inn í orðið sæða, til að koma í veg fyrir að ungir og óharðnaðir lesendur blaðsins „áttuðu sig á því augljósa stóðlífi sem átti sér stað um borð í Hildi“, samkvæmt afar hreinskilnislegri frásögn Vilborgar Örnu.