Gerard Depardieu
Gerard Depardieu
Gérard Depardieu, einn þekktasti leikari Frakka, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Tuttugu og tveggja ára leikkona tilkynnti málið til lögreglu fyrr í vikunni. Árásin á að hafa átt sér stað á heimili Depardieu fyrr í þessum mánuði.

Gérard Depardieu, einn þekktasti leikari Frakka, hefur verið kærður fyrir nauðgun. Tuttugu og tveggja ára leikkona tilkynnti málið til lögreglu fyrr í vikunni. Árásin á að hafa átt sér stað á heimili Depardieu fyrr í þessum mánuði. The Guardian greinir frá þessu.

„Ég átti langan fund með Depardieu og er algjörlega sannfærður um að sakleysi hans verði staðfest,“ segir Hervé Temime, lögmaður leikarans. Segir hann leikarann „sleginn“ vegna málsins sem stríði gegn „öllu sem hann standi fyrir og virði“.

Samkvæmt BBC þekktust Depardieu og unga konan áður en árásin á að hafa átt sér stað. Umboðsmaður konunnar segir hana „niðurbrotna“ vegna atviksins.