Ben Kingsley kvikmyndaleikari
Ben Kingsley kvikmyndaleikari
SJÓNVARP Óskarsverðlaunahafinn Ben Kingsley mun fara með hlutverk í væntanlegri sjónvarpsþáttaröð sem ber heitið Our Lady, LTD .
SJÓNVARP Óskarsverðlaunahafinn Ben Kingsley mun fara með hlutverk í væntanlegri sjónvarpsþáttaröð sem ber heitið Our Lady, LTD . Þættirnir munu segja frá loddara sem ætlar að svindla á sóknarpresti en kemst að því að hann er mun hættulegri en hann virðist við fyrstu sýn. Kingsley mun fara með hlutverk prestsins í þáttunum sem eru væntanlegir á næsta ári, en framleiðendurnir hafa pantað tíu þátta fyrstu seríu.

Kingsley státar af löngum og glæstum kvikmyndaferli, en hann hefur ekki leikið mikið í sjónvarpi undanfarna áratugi.